24.03.1986
Neðri deild: 67. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3283 í B-deild Alþingistíðinda. (2880)

372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Í framhaldi af ræðum tveggja síðustu hv. ræðumanna og eins ef svo skyldi fara að hæstv. landbrh. kveldist upp í ræðustólinn aftur og öðru sinni fer ég fram á það við hann að hann skýri fyrir þingdeildinni vel og vandlega orðalag og merkingu 4. gr. frv. Mér sýnist þar tekið til orða á ákveðinn máta sem sé með öllu ástæðulaus í þessu samhengi og í framhaldi af þessari tilteknu deilu. Ég vil því fara fram á að hæstv. landbrh. útskýri nákvæmlega við hvað er átt með 4. gr., einkum seinni hlutanum, með leyfi forseta: „Önnur verkföll, þar með taldar samúðarvinnustöðvanir, verkbönn og aðrar aðgerðir, sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða, eru óheimil.“ Ég spyr hæstv. ráðh.: Er einhver sérstök ástæða fyrir því að frv. er orðað á þennan hátt, þ.e. 4. gr.?