31.10.1985
Sameinað þing: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (289)
10. mál, nefnd til að kanna rekstur Innkaupastofnunar ríkisins
Forseti (Helgi Seljan):
Út af orðum hv. 10. landsk. þm. vil ég taka fram að forseti hefur trúlega ekki hlustað nógu grannt eftir orðum ræðumanna þannig að hann treystir sér ekki til að dæma nákvæmlega um hversu þau voru látin falla. Það mun verða athugað í þingtíðindum. Ég lýsi því hér yfir að ég tel ævinlega að varðandi svona mál verði að fara með hinni mestu varúð og gæta þess að ekki sé ráðist að einstaklingum með óviðurkvæmilegu orðbragði úr ræðustól. En forseti verður að játa að hann tók ekki eftir því að svo væri gert með þeim hætti að hann gæti stöðvað umræður og sagt: Þetta er vítavert.