24.03.1986
Neðri deild: 68. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3296 í B-deild Alþingistíðinda. (2892)

372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ekki veit ég hvers ég á að gjalda að vera dreginn upp í þennan ræðustól og eiga að vitna eftir kröfu hv. 3. þm. Vestf. Ég skal reyna að svara hans spurningum eftir því sem mér er unnt. En í upphafi teygja menn vitanlega umræður endalaust. Þá get ég ekki stillt mig um að segja að fyrst verið er að ræða um kjaramál mjólkurfræðinga hefði verið ákaflega fróðlegt að ræða um B-in þrjú, Búðardal, Borgarnes og Bitru, og athuga hvernig fénu hefur verið varið, hversu hyggilega hefur verið að verki staðið í sambandi við mjólkuriðnað hér á Suður og Vesturlandi. Ég sé ekki betur en að þeir sem kveinka sér mest hafi verið í illvígri samkeppni við Seðlabankann í sambandi við bygginguna á Bitruhálsi og þar hefur ekki verið spurt um prósentin. Hafi einhvers staðar verið bruðlað og óhyggilega haldið á málum hefur það verið í sambandi við þessi mjólkurmál.

Reyndar er sama sagan annars staðar og ætla ég ekki að fara að þylja þá sögu. Ég skil ekki heldur, þó ég sé þm. Reykvíkinga, hvernig í ósköpunum stendur á því að Sláturfélag Suðurlands byggir í Reykjavík. Það er ekki það að ég sé að harma það að það byggi í Reykjavík, en af hverju þurfa þeir að haga sér eins og árið 1920 þegar það voru svona ákveðnir boddíbílar sem komust milli Reykjavíkur og Selfoss? Þegar atvinnuleysi er á Selfossi og hægt er hafa þar kjötvinnslu, af hverju eru þeir þá að flytja þetta til Reykjavíkur og byggja hér milljónahallir? Því í ósköpunum reyna þeir ekki að koma á móti þessu fólki sínu í þessu byggðarlagi? Það er nú meira dálætið sem bændasamtökin hafa á Reykjavík. Þau slá alla út í hótelbyggingum. Endalausir peningar eru til í það. Þeir tvöfalda á Sögu, segja þeir, og vel það og það er meira að segja miklu vinalegra, hlýlegra og íburðarmeira. Hverjir eru hér að tala? Fulltrúar fólks, bænda um land allt sem örugglega eru ekki ofhaldnir. Og hagspekin og búskaparhættir allir í sambandi við byggingu þessarar mjólkurstöðvar sem ég gat um, þar held ég sé ekki hyggilega að verki staðið. Ég held að þessi bygging á Bitruhálsi veki forundran allra þeirra sem kunnugir eru og þar hefði verið hægt að halda betur á.

Ekki ætlaði ég að fara að messa um það. Ég var píndur upp í ræðustól af hv. 3. þm. Vestf. Hann spurði: Eru mjólkurfræðingar að fara fram á meira en verkafólk fékk almennt í kjarasamningunum? Ég mundi svara þessari spurningu þannig að allt til dagsins í dag voru þeir að fara fram á töluvert meira. Þeir geta sjálfsagt fært sín rök fyrir því. Ég er því persónulega andvígur, eins og hv. 3. þm. Vestf., að þeir sem eru á hærri launum fái einhverjar aukasporslur eftir að búið er að gera samninga eins og tíðkast hefur mjög á landi hér í gegnum tíðina. Og það er rétt sem 3. þm. Vestf. segir, mér kæmi ekki á óvart, þó ég líki ekki saman mjólkurfræðingum og flugstjórum, að flugstjórar eigi eftir að koma fram með þrefaldar kaupkröfur á móti almennu verkafólki.

En ef við lítum á þessa deilu og drögum frá þær kröfur sem mjólkurfræðingar voru með, þeir geta sjálfsagt fært sín rök fyrir þeim, er eftir einn hlutur, þetta svokallaða fæðis- og ferðagjald. Og af hverju skyldi það vera til komið? Það er til komið vegna þess að Mjólkursamsalan er að flytja í úthverfi Reykjavíkur sem er fyrir utan flutningalínur sem stéttarfélög almennt hafa. Með því að flytja úr Mjólkurstöðinni á Laugavegi í Mjólkurstöðina á Bitruhálsi verða mjólkurfræðingar, hvort sem menn hafa samúð með þeim eða ekki, án fæðis- og flutningagjalds. Bifvélavirkjar og aðrir iðnaðarmenn koma til með að fá þetta gjald og hafa það í samningum. Dagsbrúnarmenn eru ekki ofhaldnir en eru 56% af starfsliði Mjólkursamsölunnar og það er samningsleg skylda að flytja þá að og frá vinnustað í væntanlegri mjólkurstöð. Gamla Mjólkurstöðin er innan flutningalinu. Nýja Mjólkurstöðin er utan flutningalínu, langt fyrir utan flutningalínu, meira að segja fyrir utan flutningalínu iðnaðarmanna sem er einhvers staðar við Elliðaár eða hvar það nú er. En Dagsbrúnarmenn eiga rétt á að vera fluttir að og frá vinnustað í vinnutíma, heim í mat eða þeir fá frítt fæði þegar hin nýja stöð tekur til starfa.

Vissulega býst ég við að um þetta verði samið, það verður ekki farið að flytja menn þarna heim í matartíma. Það sem liggur á bak við er, að ég hygg, ég hef ekkert rætt við mjólkurfræðinga, að þeir vilja ná þarna ákveðnum jöfnuði, jöfnuði að því leyti að það er samræming á vinnustað. Þetta er í sjálfu sér ekki kauphækkun, þó það verði kauphækkun fyrir suma. Það er lengra á vinnustaðinn og þeir verða í minni réttindum en aðrir. Upplýst er líka að þeir eru reiðubúnir að ræða um einhver önnur atriði, t.d. þegar flutt er að Bitruhálsi komi einhverjir flutningar til greina. Þetta eru atriði sem á að vera hægt að semja um. Búið er að hleypa í þetta hörku og ákveðinni óbilgirni þannig að málum er svona komið.

Hv. 3. þm. Vestf. og aðrir verða að dæma um hvort þarna er keyrt fram fyrir aðra. Ég mundi segja að þarna væri verið að samræma ákveðin réttindi á vinnustað. Ég sé ekki að það sé mikil goðgá. Hins vegar eru menn ákaflega tortryggnir og hafa oft og tíðum verið í sambandi við mjólkurfræðinga. Ég held að sú samninganefnd, sem hefur farið með samninga fyrir mjólkurfræðinga, hafi haldið miklu betur á en hér áður fyrr, þegar mjólkurfræðingar voru kannske einir í vinnudeilu, deilt var kannske um gúmmístígvél eða eitthvað lítils háttar og mjólkurflutningar stöðvuðust og bændur urðu að hella niður mjólk í nokkra daga. Ég held að þá hafi t.d. félag eins og Dagsbrún haft miklu sterkari taugar til bænda. Hitt er hins vegar annað mál að mjólkurfræðingar fengu nokkrar góðar lagfæringar 1982 í kjaradómi. Hins vegar hafa þeir ekki verið hálaunastétt en þeir fengu nokkuð góðar lagfæringar þarna.

Ég held að ef á að fara að setja lög um að samræma ákveðna flutninga, ákveðin réttindi á sama vinnustað, og það er kallaður saman næturfundur á Alþingi, hefði verið hægt að laga þetta mál og koma þessu saman. Ég held bara að frá hendi viðsemjenda þeirra, Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambandsins, hafi verið nokkurn veginn nei við öllum hlutum. Ég held að sú samninganefnd, sem mætti þarna fyrir mjólkurfræðinga, hafi alls ekki haldið þannig á málum að brýn þörf væri á lagasetningu enda ber það satt að segja vott um mikla fljótfærni þegar jafnvandaður maður og hæstv. landbrh. flytur ræðu klukkan fimm í dag sem greinilega er samin kl. tvö um daginn og mál hafa gjörbreyst, mjólkurfræðingar hafa fallið frá meginhlutanum af sínum kröfum og eftir stendur þetta eina mál. Ef veifað er framan í annan aðilann: við höfum hér lög handa ykkur, garga þeir náttúrlega bara meir. Ég held að þarna hafi verið nokkuð klaufalega á málum haldið.

Ég skal ekki orðlengja þetta mál meira en varðandi þennan kjaradóm verð ég að segja að honum eru settar ákaflega þröngar skorður. Ég býst við að margir félagsmenn í félagi mjólkurfræðinga hafi bundið einhverjar vonir við þennan kjaradóm. Hann reyndist þeim nokkuð vel síðast. En 2. gr., þar sem sagt er að tekið skuli mið af vinnumarkaði frá því kjarasamningar voru lausir hinn 1. janúar 1986, neglir þetta náttúrlega algjörlega niður. Niðurstaða kjaradóms er raunverulega gefin með lögunum.

Ég vil taka það fram að ég er algerlega mótsnúinn því að hærra launaðar stéttir vaði uppi í þjóðfélaginu og ætli sér að standa á öxlunum á þeim sem lægra eru launaðir. En hér held ég að um sé að ræða að nokkur hluti ákveðins starfshóps vill samræma sín samningsákvæði öðrum starfshópum. Ég tel þetta ekki krossbrjóta frekar en forseti Alþýðusambandsins. Ég held að það hafi verið ákaflega illa haldið á þessu máli. Svona mál á að vera hægt að leysa og það mælist yfirleitt ákaflega illa fyrir, þó mikið sé um það, að menn á sama vinnustað vinni samkvæmt mismunandi kjaraákvæðum hvað varðar flutninga, fæði o.s.frv. Hitt tek ég vel undir að bændur eru illa settir og þola það illa að að þeim sé þrengt eins og hlutur þeirra er og skil ég vel ótta þeirra.

Ég held að ekki beri að líta á þetta mál sem einhverja allsherjarmismunun heldur samræmingu starfshópa á sama vinnustað sem ég held að ekki eigi að leysa með lögum og hefði verið hægt, hefði verið betur að verki staðið, að leysa. Ef mjólkurfræðingar hefðu staðið á sínum fyrri kröfum neita ég því ekkert að undir þeim kringumstæðum hefði ég ekki greitt atkvæði á móti lögunum. Eftir að þeir eru fallnir frá öðru en samræmingarákvæðum greiði ég atkvæði á móti lögunum og ég tel það illa farið þó að um það sé ekki hægt að saka virðulegar landbn. þingsins. Ég held að í samningsgerðinni hafi verið haldið þannig á málum að það hafi verið ásetningur að láta þessa stöðu koma upp og er það miður.