25.03.1986
Sameinað þing: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3326 í B-deild Alþingistíðinda. (2945)

335. mál, byggingarkostnaður nýs útvarpshúss

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég get ekki tekið undir þau ummæli hv. fyrirspyrjanda að brýna nauðsyn beri til að hraða framkvæmdum við þau ósköp sem þetta hús er. Áætlað er að það muni kosta 829 millj. Ætli það bætist ekki eitthvað við það, t.d. lagfæring á lóð sem er ekkert smáræði. Það væri hægt að hafa þar allmargar kýr á beit t.d.

En í öllu falli held ég að það sé mjög misráðið að ætla að flytja sjónvarpið í þetta hús. Hv. alþm. þurfa að fara og sjá þetta hús að innan, ganga um það og sjá hver ósköpin eru þarna á ferðinni. Leiðslukjallarinn einn er miklu stærri en þær hæðir sem við sjáum. Hann er neðan jarðar. Þar á ekkert annað að vera en leiðslur fyrir sjónvarp. Mér skilst það sé orðið lítið um leiðslur. Þetta eru orðnir örmjóir þræðir og jafnvel fjarskipti. Það er slík sóun og ofboð og níðingsháttur gagnvart útvarpinu að ætla að flytja það inn í þessi ósköp að þessa byggingu á að stöðva. Það á að selja hana. Það er mjög vel hægt að koma þarna fyrir a.m.k. 100 smáíbúðum á efri hæðunum. (Gripið fram í.) Það má gera þarna smáíbúðir, hv. þm., með mjög góðum hætti. Það hefur fyrrv. þm. Lúðvík Jósepsson mælt. Við höfum gengið um þetta og skoðað þetta. Þar má mjög vel koma fyrir um 100 smáíbúðum. Þá er allur leiðslukjallarinn eftir. Þar mætti hafa t.d. kartöflugeymslu og ýmislegt annað úr því að kartöflur eru á dagskrá. Hann er mjög vel fallinn til þess. Gjarnan mætti hafa þarna einhvern smáiðnað.

A.m.k. ber að forðast að flytja útvarpið inn í þessi ósköp, sérstaklega þó sjónvarpið. Það væri hægt að hugsa sér að útvarpið væri þarna uppi í turninum, en miklu betur væri það sett einhvers staðar annars staðar í litlu laglegu húsi þar sem hægt væri að koma við menningarlegri hugsun.