25.03.1986
Sameinað þing: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3332 í B-deild Alþingistíðinda. (2954)
Framkvæmd framfærslulaga
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Ég þakka hv. 10. landsk. þm. fyrir að vekja máls á því máli sem hún hér hreyfir. Ég vil benda á að af ráðherrum er aðeins einn staddur hér í salnum og finnst mér það mjög táknrænt um stöðu þessa máls að áhugi ráðherra bæði fyrr og nú virðist birtast í því að vilja ekki einu sinni vera viðstaddir þá umræðu þar sem fjallað er um einhverja alvarlegustu frétt sem fram hefur komið um langan tíma. Eins og hv. 3. þm. Reykv. sagði erum við í fyrsta sinn að tala um fátækt hér á Alþingi í mjög langa tíð.
Ég bendi á samhengi þessarar umræðu við það sem fram fór hér í gær þegar maður gekk undir manns hönd að samþykkja lög á lítinn hóp launamanna sem höfðu leyft sér að gera kröfur um einhverja sértæka hagsmuni í samningum. Það var barið niður með lögum.
Við erum að upplifa afskaplega einkennilegan hlut og að því að mér finnst mjög óhugnanlegan. Við höfum búið í réttarríki, en ég hef fulla ástæðu að ég tel til að óttast að þetta réttarríki sé á einhvern hátt hreint og beint að gliðna í sundur í höndunum á okkur. Við börðumst á sínum tíma fyrir því að koma á aðskilnaði löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Við börðumst einu sinni fyrir því að koma á frjálsum samningsrétti aðila vinnumarkaðarins og það var eitt aðalbaráttumál verkalýðshreyfingarinnar að fá þennan samningsrétt í hendur og vera óháðir ríkisvaldi og öðrum afskiptum. Núna allt í einu, þegar verkalýðshreyfingin hefur samþykkt afskipti hins opinbera af samningum, opinberast okkur að hún er ekki einasta búin að skrifa undir óbreytt ástand í launamálum, sem við höfum búið við, heldur er hún líka búin að skrifa undir að hátt í 20 000 fjölskyldur á þessu landi skuli búa við fátækt. Hún er búin að samþykkja að standa að því að viðhalda því ástandi. Ég tel að með hegðan sinni og framkomu sé hún búin að fyrirgera rétti sínum til að gera nokkuð í því ástandi þannig að það verkefni hlýtur að liggja hjá löggjafanum ef löggjafinn þá á annað borð hefur áhuga á því.