25.03.1986
Sameinað þing: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3334 í B-deild Alþingistíðinda. (2958)
Framkvæmd framfærslulaga
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það er nöturleg staðreynd en staðreynd engu að síður að við stöndum nú hér á hinu háa Alþingi á því herrans ári 1986 og ræðum um fátækt á Íslandi. Það alvarlegasta við málið er að við erum ekki að ræða um fátækt örfárra utangarðsmanna eða minnihlutahópa í þjóðfélaginu, við erum að ræða um fátækt vinnandi fjölda á Íslandi, stórs hluta hinnar vinnandi alþýðu landsins. Það er sú fátækt sem við erum að ræða um og það er alvarlegt mál.
Það er einnig staðreynd, herra forseti, að stjórnarliðar hafa verið fáliðaðir hér á hv. Alþingi þann tíma sem við höfum haft þetta mál til umræðu. Ég horfði upp á þá tínast héðan einn af öðrum úr þingsalnum. Var umræðuefnið e.t.v. orðið eitthvað óþægilegt í þeirra eyrum? Ég spyr. Um tíma voru tveir hv. þm. Sjálfstfl. staddir í þingsalnum, þar af annar tepptur við forsetastörf.
Herra forseti. Ég vil taka undir það með hv. síðasta ræðumanni að það er e.t.v. ekki ástæða til að eyða tíma í karp um það hverjar séu orsakir þess til langs tíma litið að við stöndum í þessum sporum á Íslandi í dag. En hinn pólitíski veruleiki blasir við og ábyrgir stjórnmálamenn, hvort sem þeir heita hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson eða sá sem hér talar, eiga ekki að reyna að hlaupa frá þeim pólitíska veruleika líðandi stundar bak við fortíðina, aftur í aldir eins og hv. þm. reyndi hér að gera.
Ég vil segja við hv. þm. að lokum, ekki eldri maður en ég er, að ég man þó tímana tvenna: Ég tel mig þekkja fátækt vinnandi fólks á Íslandi frá tveimur tímum, hinnar líðandi stundar dagsins í dag, þess tíma sem Sjálfstfl. hefur nú verið við stjórnvölinn, og frá þeim tíma sem ég man fyrst eftir mér, í tíð viðreisnarstjórnarinnar sálugu. Þá var stjórnarstefna íhaldsins einnig prufukeyrð á Íslandi um nokkurt árabil. Að vísu studdist Sjálfstfl. þá við aðra hækju sem hét Alþfl. Nú er það Framsfl.
Ég er fæddur og uppalinn í litlu byggðarlagi, herra forseti, þar sem menn þekktu vel til kjara hvers annars og vissu nokkuð gjörla hvað hver fjölskylda hafði úr að moða. Ég man frá þeim tíma fátækt og atvinnuleysi sem ég get helst borið saman við það sem ég þekki hjá nokkrum fjölskyldum í dag. Þetta vil ég biðja hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson að hugleiða.