25.03.1986
Sameinað þing: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3336 í B-deild Alþingistíðinda. (2960)
Framkvæmd framfærslulaga
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. og hv. þm. sem hér hafa tekið til máls. Á aðalfundi Lögverndar 22. mars s.l. var gerð eftirfarandi ályktun:
„Fundurinn skorar á Alþingi Íslendinga og ríkisstj. að beita sér af alefli fyrir eftirfarandi atriðum:
1. Stöðvuð verði þegar í stað sú gegndarlausa eignaupptaka og eignatilfærsla sem átt hefur sér stað og á sér stað í þjóðfélaginu og er þess valdandi að fólk þarf að ganga í gegnum endalausar hörmungar í skjóli löglegs siðleysis. Fundurinn vekur athygli á að við höfum færst aftur um aldir í réttarfari og siðmenningu. Undirheimahagkerfi blómstrar í skjóli opinbers siðleysis og löglegra þjófnaða á meðan nágrannaþjóðirnar byggja upp menningu, velferð og hagsæld á manneskjulegum grundvelli.“
Þetta eru hörð orð en engu að síður sönn. Alþingi Íslendinga og samtök launafólks standa máttvana gagnvart því óþurftarliði sem sölsað hefur undir sig afrakstur þeirrar vinnu sem launafólk leggur fram, oft miklu meiri vinnu en sanngjarnt er og hollt getur talist. Vinnuþrælkun hefur dregið úr baráttuþreki launþega til að standa vörð um sjálfsagðan rétt sinn til lífvænlegra launa og lamað sjálfsvitund þeirra og réttlætiskennd.
Þær raddir heyrast ekki lengur, ekki einu sinni hjá forustumönnum launþega, að menn eigi að geta lifað af dagvinnulaunum. Þess í stað hafa sérhagsmunahópar innan launþegasamtakanna leitað hinna ólíklegustu leiða til tekjuaukningar og þá allra leiða annarra en einfaldlega þeirrar sjálfsögðu kröfu um mannsæmandi laun fyrir dagvinnu.
Þannig hefur verkalýðshreyfingin látið mola sig niður innan frá og lama sig gagnvart þeim sem fjármagnið eiga þar til svo er komið að forustumenn launþegasamtakanna og ráðherrar ríkisstjórnarinnar deila um það af alvöru hvor aðilinn hafi haft síðasta frumkvæðið um að halda lífskjörum íslenskra fjölskyldna undir fátæktarmörkum.
Stór hluti Íslendinga bruðlar með fé launþega af fullkomnu blygðunarleysi og Alþingi gerir ekki tilraun til að stöðva það. Einn hluti landsmanna kemst upp með að svíkja fé út úr öðrum hluta þeirra eins og honum best hentar og sækir síðan þjónustu samfélagsins í vasa launþega án þess að leggja sinn skerf fram til sameiginlegra sjóða.
Þegar svo hart er gengið að fátækasta hlutanum, að hann verður að leita hjálpar samfélagsins hér í borg. Davíðs, fær hann stimplaðan úttektarmiða til að sýna í verslunum. Hvers eiga börn þessa fólks að gjalda? Verða aðrar og minni kröfur gerðar til þeirra þegar þau taka sér stöðu sem fullvaxnir einstaklingar í þjóðfélaginu? Er þá ekki rétt að brennimerkja þá svo ekki fari á milli mála hvernig aðstæður þeirra voru í uppvextinum? Ég spyr.
Herra forseti. Fátækt er rót hins illa. Ég er hrædd um að hv. þm. Árni Johnsen verði að gera sér grein fyrir því að ef Íslendingar þyrftu að liggja úti þá er kalt hér, þá yrðu þeir hvorki fátækir né ríkir. (ÁJ: Það er ekki langt síðan það var.) Henni fylgir umkomuleysi og örvænting, öryggisleysi sem er hættulegt ungum börnum og þar með framtíð þessarar þjóðar.
Ég vil lýsa því yfir að ég skammast mín. Ég skammast mín fyrir að sitja hér á hinu háa Alþingi sem fulltrúi þess flokks sem vinna vill að réttlátri tekjuskiptingu í þjóðfélaginu og verða vitni að því hvernig unnið er markvisst að hnignun þessa þjóðfélags með látlausum árásum á þá sem unnið hafa þessu þjóðfélagi lengstan vinnudag og vinna þær afurðir sem mestan arð og auð skapa því óþurftarfólki sem arðinn hirðir síðan. Milli þessara aðila er sáttargerð fáránleg. Launþegar eiga í stríði við arðræningjana en ekki hver við annan. Þeir eiga sjálfir að gefa ríkisstj. skömmtunarseðla á vald hennar í framtíðinni.