25.03.1986
Sameinað þing: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3338 í B-deild Alþingistíðinda. (2962)
304. mál, jafn réttur til fræðslu
Flm. (Kristín S. Kvaran):
Hæstv. forseti. Hér er til umræðu till. til þál. á þskj. 568, um jafnan rétt til fræðslu og skipulag fræðslu í landinu óháð námsleiðum og námsstigum. Flm. auk mín eru hv. þm. Ellert B. Sehram og Karvel Pálmason.
Miklar og víðtækar hræringar hafa átt sér stað í skólamálum á Íslandi undanfarna tvo áratugi. Á þeim tíma hefur oftlega verið rædd nauðsyn þess að skipulagslegum lágmarksforsendum yrði fullnægt, þannig að fólk gæti örugglega neytt réttar síns. Hvernig þessar skipulagslegu forsendur ættu að líta út hafa menn hins vegar í gegnum tíðina alls ekki orðið sammála um.
Menn hefur greint á um það að hve miklu leyti þörf er á að njörva allt niður hvað viðkemur skólamálum í smáatriðum í lagabálka, allt til þess að hafa um þau einfaldan ramma. Ekki hefur þess vegna orðið neitt úr því enn sem komið er að lög hafi séð dagsins ljós. Hefur það staðið menntakerfinu fyrir þrifum að við eigum ekki til löggjöf um hvert námsstig og námsleið fyrir sig.
Ég tel að sú þróun, sem átt hefur sér stað í menntamálum hér á landi, sýni betur en nokkuð annað að það sem í reynd vantar er menntastefna, heildstæð menntastefna en ekki sérstakur lagabálkur um sérhverja leið og/eða stig. Það sem hefur flækt málin verulega er hvernig kostnaðarhlutdeild ríkis og sveitarfélaga skuli varið. Að öðru leyti virðast menn hafa getað leyst málin að flestu eða öllu leyti án verulegrar lagaíhlutunar. Þar hafa reglugerðir verið settar og þjóna þeim tilgangi að halda mönnum við efnið.
Frá setningu fræðslulaga frá 1946 og fram á 7. áratuginn var fræðslukerfi landsins í býsna föstum skorðum. Síðan hefur mikið umrót átt sér stað í menntakerfinu öllu og virðist ekkert lát þar á. Þar eru aðallega fimm atriði sem standa upp úr:
Það fyrsta er að setning grunnskólalaganna á sínum tíma markaði þáttaskil. Með þeim var reynt að fallast á það grundvallarsjónarmið að mismunandi aðstæður nemenda félagslega séð eða á annan hátt skyldu ekki ráða því hvernig nemendum vegnaði í skóla. Skyldi í staðinn reynt að koma til móts við mismunandi þarfir hvers og eins. Sérstæði námsgreina var afnumið og leitað nýrra leiða að settum markmiðum. Opni skólinn svokallaði er liður í þessari viðleitni og árangurinn lætur ekki á sér standa. Sýning nemenda í Fossvogsskóla í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar talar sínu máli um það.
Annað atriði má nefna, sem er að á 7. áratugnum stórefldist Háskóli Íslands og síðan hefur verið haldið áfram uppbyggingu hans og þróun.
Í þriðja lagi má taka til að í framhaldsskólunum hafa víðáttur opnast. Áfangakerfi var tekið upp 1972 og öldungadeildir tóku til starfa 1973. Sama ár var í fyrsta skipti undirritaður samningur milli sveitarfélags og menntmrn. um stofnun fjölbrautaskóla. Fjölbrautaskólar utan Reykjavíkur hafa orðið miðstöðvar framhaldsnáms í fræðsluumdæmunum.
Í fjórða lagi hefur mikil umræða verið um opinn háskóla sem væntanlega verður öllum opinn og til dreifðra byggða munu boðin berast á öldum ljósvakans. Það fjarnám leysir þannig hefðbundna kennslu í skólastofunni að einhverju leyti af hólmi.
Fimmta atriðið í þessu eru þeir bréfaskólar sem starfað hafa með miklum blóma og hvers kyns fræðsla í skólum eða á námskeiðum hjá verkalýðshreyfingunni, í frjálsum félögum eða einkaskólum svo að dæmi séu tekin. Af þessari upptalningu má ráða að ekkert virðist fá stöðvað þá þróun sem nú á sér stað og verður að öllum líkindum kröftugri í framtíðinni.
En þá er næst að spyrja: Hvað hefur ýtt þessu öllu úr vör og hver er undiraldan? Ég tel að fyrst og fremst hafi verið um að ræða áhuga skólafólks. Skólar hafa verið reknir án þess að mikil lagaboð hafi þurft að koma til. Hætt er við að ekki hefði verið eins djarflega gengið fram ef fyrst hefði þurft að setja lög um hvert skref. Með frjálsu samstarfi skólamanna, kennara, stjórnenda og nemenda hafa menn fundið skynsamlegar leiðir. Stuðst hefur verið við reglugerðir, t.d. um rekstur fjölbrautaskólanna. Það er álit okkar, sem að tillögunni stöndum, að ef skólinn á að vera lifandi og í tengslum við umhverfi sitt sé ekki ráðlegt að njörva skólakerfið á þrönga lagabása. Til þess eru hræringar of miklar. Skólar kalla á sífellda breytingu.
Skólamönnum er ætlandi og treystandi til að taka tæknina í þjónustu sína til að ná til allra jafnt sem notfæra vilja sér þjónustu skólans. Með því móti ætti að vera unnt að stunda framhalds- og háskólanám hvar sem er og þannig unnt að ýta undir lifandi skólakerfi þar sem meiri samfella skapaðist í skólagöngunni. Leiðirnar til fræðslu og menntunar verða hins vegar að vera betur afmarkaðar en þær eru í dag.
Með samræmingu laga um fræðslu, hvort heldur er um hefðbundna skólagöngu í grunnskóla eða framhaldsskóla að ræða sem og hvers kyns sérnám, starfsnám, endur- og eftirmenntun, frjálst nám og námskeið, t.d. í tengslum við atvinnulífið, verður að kveða nánar á um námsleiðir. Jafnframt þarf að tryggja og opna leiðir þeim aðilum sem sinna vilja fræðslu í landinu, hvort sem þeir aðilar vilja fara hefðbundnar leiðir eða þræða ókunna stigu. Lög, sem þessi þál. gerir ráð fyrir að verði að veruleika, tryggðu þannig rétt fólks fyrir mismunandi leiðir til náms og gerðu ráð fyrir ákveðnum námsstigum.
Það er við hæfi að benda á að fyrir hv. Alþingi liggur frv. til sveitarstjórnarlaga. Þar er kveðið á um ýmis nýmæli í verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. En eins og ég gat um fyrr í máli mínu hefur fjárhagshlið skólakerfisins einmitt verið ljár í þúfu fram að þessu. Hvers vegna er þessi kostnaðarskipting ekki sett inn í þau lög, lög sem fjalla hvort eð er um verkaskiptingu þessara aðila og hins vegar svo í fjárlög? M.a. er það þetta atriði sem hvað eftir annað hefur komið í veg fyrir að frv. að framhaldsskólalögum hafi náð fram að ganga.
Spyrja má í framhaldi af því hvort ekki sé ástæða til að fara hægt í sakirnar, skoða nánar hvað gert hefur verið fram að þessu og spyrja: Hvernig hefur t.d. til tekist með framkvæmd grunnskólalaganna? Þá þarf einnig að athuga að á framhaldsskólastigi hafa verið starfræktir tilraunaskólar en aldrei verið kannaður árangur tilraunanna.
Í þessu sambandi vil ég, með leyfi herra forseta, lesa upp úr lögum um heimild til að stofna fjölbrautaskóla. Þetta eru lög nr. 14/1973 sem fjalla um hin einföldustu atriði. Í 1. gr. þeirra segir:
„Heimilt er menntmrn. og Reykjavíkurborg að stofna til tilraunaskóla er nefnist fjölbrautaskóli. Skólinn skal vera fyrir nemendur er hafa lokið skyldunámi og veita þeim tiltekin réttindi til sérnáms í framhaldsskólum eða háskóla, svo og menntun og þjálfun í ýmsum starfsgreinum.“
Þrátt fyrir að ekki sé um meiri eða víðtækari lagatexta að ræða hafa þessir skólar þróast áfram. Skortur á lagabálkum virðist því ekki hafa hamlað skólastarfi í landinu. Það er hins vegar kominn tími til að hv. Alþingi lýsi yfir vilja sínum um að allir skuli sitja við sama borð í þessu landi hvað varðar réttinn til fræðslu. Til þess að svo megi verða er að mati flm. hyggilegt að kveða nánar á um námsleiðir. Þess vegna er það að hér er í raun og veru gerð tillaga um að sett verði rammalöggjöf um fræðslu- og menntakerfi sem við Íslendingar ætlum okkur að bjóða upp á. Með því móti fjallaði Alþingi um það að hér væri í gildi fræðslulöggjöf sem væri samfelld og heilstæð en gæfi jafnframt færi á þeim sveigjanleika sem nauðsynlegur er til þess að geta rúmað breytilegar þarfir og aðstæður hverju sinni. Slík löggjöf gæti innihaldið hlutverk og markmið fræðslunnar og enn fremur þyrfti að koma fram stefnumörkun stjórnvalda um jafnan og óskiptan rétt fólki til handa um að afla sér menntunar. Þetta telja flm. vera það sem slík rammalöggjöf þyrfti að rúma. Á þeim lagagrunni byggðust síðan reglugerðir sem spönnuðu kerfisbundið hverja námsleið og námsstig.
Vitaskuld er flm. ljós sú staðreynd að ef slík leið verður farin kostar það að menn verða að hugsa upp á nýtt. Þeir verða að gera sér ljóst að verið getur að lagabálkar, sem áður hafa verið gerðar kröfur um að settir verði, eru ekki endilega nauðsynlegir og geta hugsanlega staðið í vegi fyrir þróuninni. Það nægir að benda á að umfram fjölbrautaskóla er sjúkraliðaskólinn einnig rekinn á reglugerð sem á sér þá stoð eina í lögum að um sjúkraliða segir svo í hjúkrunarlögum frá 1974, með leyfi forseta:
„Heimilt er að þjálfa sjúkraliða til aðstoðar við hjúkrun og skal nám þeirra, starfsréttindi og skyldur ákveðið í reglugerð.“ Þrátt fyrir þá staðreynd að þessi skóli á sér aðeins þessa stoð í lögum virðist það síður en svo hafa hamlað skólanum að gegna því hlutverki sem honum var frá upphafi ætlað og hefur sá skóli þróast með eindæmum hratt og vel. Þess vegna er ljóst að slík rammalöggjöf, sem þessi ályktun gerir ráð fyrir, verður til þess að gera auðveldara það sem skólamenn hafa fram að þessu tekið höndum saman um að þróa, og á ég þá við þau grundvallarmarkmið sem framhaldsskólakerfið hefur starfað eftir fram að þessu. Með því að slík stefna yrði lögfest gæti endurskoðun námsefnis og þeir valkostir, sem bjóðast í nýjum námsleiðum hverju sinni, gerst án lagabreytinga. Þannig er á auðveldan hátt hægt að stuðla að því að fræðslan verði sem víðtækust og nái til allra þeirra þátta sem nútímaþjóðfélag gerir ráð fyrir hverju sinni. Slík rammalöggjöf yrði þar með til þess að búa svo um hnútana að þróun þjóðfélags hvers tíma eigi ætíð greiða leið þar um.
Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til hv. félmn.
Umr. (atkvgr.) frestað.