01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3346 í B-deild Alþingistíðinda. (2968)

305. mál, sendifulltrúi Íslands á Grænlandi

Fyrirspyrjandi (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég þakka utanrrh. greið svör við fsp. minni sem ég bar hér fram um skipan íslensks fulltrúa á Grænlandi.

Það er ánægjuefni að heyra það, sem kom fram í svari hans, að í þessum efnum eru greinilega breytt viðhorf. Fram til þessa munu grænlensk stjórnvöld hafa verið mjög ófús að taka við erlendum sendifulltrúum til setu í landi sínu, en eftir því hefur verið mjög leitað af ýmsum þjóðum, m.a. Kanadamönnum. Nú virðast ný viðhorf komin upp í þeim efnum. Eins og fram kom í svari ráðherra stendur til og er í athugun að skipa íslenskan kjörræðismann í Nuuk eða jafnvel annars staðar á Grænlandi. Ég held, eins og ég sagði í mínum upphafsorðum, að þar væri um mjög þarft spor að ræða. Ekki síst á það við um ýmis viðhorf í viðskiptaefnum. Eins og kunnugt er selja íslensk fyrirtæki allar frystar fiskafurðir Færeyinga á Bandaríkjamarkaði. Það er eitt af þeim atriðum sem ég nefndi ekki í upphafi en kemur vitanlega til greina þegar við ræðum um viðskiptasamvinnu að því er varðar afurðir Grænlendinga.

En ég fagna því að skriður er loks að komast á þetta mál eins og upplýst var í svari hæstv. ráðh.