01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3355 í B-deild Alþingistíðinda. (2984)
309. mál, vandi vegna misgengis launa og lánskjara
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Hv. 3. þm. Reykv. hefur kvatt sér hljóðs á ný, en samkvæmt venjulegri reglu er ekki hægt að leyfa örstuttar athugasemdir nema einu sinni. Það er venjan. Forseta hefur hins vegar verið bent á að hæstv. fjmrh. hafi komið með beina spurningu til hv. 3. þm. Reykv. og hefur þá forseta orðið á að láta þess ekki þá þegar getið að hæstv. fjmrh. gæti ekki komið með spurningar til hv. þm. sem hefur ekki tækifæri til þess að svara. En með tilliti til þess hvernig málið ber að leyfist hv. 3. þm. Reykv. að gera nú örstutta athugasemd viðvíkjandi svari við umgetinni spurningu.