04.11.1985
Efri deild: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (299)

91. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Davíð Aðalsteinsson:

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst þakka hæstv. heilbrrh. fyrir að bregðast svo skjótt við varðandi flutning þessa frv.

Það þarf e.t.v. ekki mörgu að bæta við þessa umræðu. Það er alveg ljóst að sumir bera jafnvel meiri kvíðboga vegna þessa sjúkdóms en kjarnorkuógnunar sem nú vofir yfir mannkyninu. Margir þeir sem þarna hafa komið að og þykjast hafa vit á hafa látið þau orð falla.

Því hefur löngum verið haldið fram, og ekki vil ég draga það í efa, að heilbrigðiskerfi okkar sé þokkalega og jafnvel mjög vel uppbyggt og ekki síðra en í mörgum af okkar nágranna- og menningarlöndum. Þess vegna hlýtur maður að láta þá von í ljós að heilbrigðiskerfi okkar og skipulag þess sé í stakk búið að fást við þetta mál eins og aðra sjúkdóma sem upp hafa komið.

Ég held fyrir mitt leyti að hér svo alvarlegt mál á ferðinni að jafnvel hefði verið ástæða til setningar sérlaga. Setning sérlaga hefði að mínum dómi ekkert fremur verið af því tagi að einstaklingarnir hræddust umtal um þennan sjúkdóm og af þeim sökum hefði ekki komið til athugunar. Reyndar hefði ég ekki þurft að taka þetta fram því að skoðun mín er sú að vegna þessa sjúkdóms væri full ástæða til að hefja skipulega athugun á því meðal einstaklinga hvort sjúkdómurinn er hér fyrir hendi. Slík skoðun grundvallaðist ekki á frumkvæði einstaklinganna, heldur yrði alfarið um skipulega skoðun að ræða.

Það má vel vera að það sé mjög auðvelt á þeim lagagrunni sem hér er lagður til að koma við verulega skilvirkari aðgerðum í þessu efni en varðandi aðra þá sjúkdóma sem hér eru taldir upp, en mönnum blandast ekki hugur um að hér er miklu hættulegra mál á ferðinni.

Virðulegi forseti. Það má auðvitað segja að okkur hv. alþm. skorti nokkrar forsendur til að fjalla um svona mál af því viti sem þyrfti til, en mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hefði verið hugað að þeim kostnaði sem óumflýjanlegt er að stofna til vegna þeirra rannsókna og þeirra athugana sem fram munu fara í þessu máli. Ég ber ekki fram þessa spurningu vegna þess að ég telji að þar eigi að skera við nögl. Þvert á móti tel ég að í þessu máli megi einskis láta ófreistað og síður en svo eigi að horfa í kostnað, en ekki síður þess vegna er ástæða til að huga að kostnaðarþættinum.

Ég mun að sjálfsögðu sem formaður heilbr.- og trn. leitast við að hraða meðferð þessa máls og ég dreg ekki í efa að meðnm. mínir munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að svo megi verða. En vegna orða hv. 11. þm. Reykv. vil ég geta þess að ekkert er því til fyrirstöðu að sá hv. þm. fái setu í heilbr.- og trn. vegna umfjöllunar um þetta mál.