01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3357 í B-deild Alþingistíðinda. (2991)

334. mál, fæðingarorlof

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda hans frumkvæði. Það vottar þá enn þá fyrir áhuga hjá hv. þm. framsóknar á þessu máli, en ekki er samgangurinn milli stjórnarliðanna ýkja mikill og ekki hefur eftirreksturinn af hálfu Framsfl. verið ýkja mikill heldur. Það er alveg glöggt. Eins og kom fram í máli hv. þm. eru liðin þrjú ár síðan þeir rugluðu saman reytum og ekkert hefur verið gert í málinu síðan. Það er dálaglegt að hugsa til þess að á næstu dögum mun trúlega sú nefnd, sem fjallar um frv. um fæðingarorlof í Ed., vísa því máli, máli hv. 11. þm. Reykv., til þeirrar ríkisstj. sem hefur ekkert hreyft sig s.l. þrjú ár í þessum málum, en hásetar á fleyinu vita ekkert um hvað verið er að fjalla um á stjórnarbúinu og ráðherra hyggst núna fyrst fara að setja nefnd í málið til einhverrar þeirrar framkvæmdar sem ekki er nokkur leið að botna í til hvers muni leiða eftir orðum hæstv. ráðh. áðan.