01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3360 í B-deild Alþingistíðinda. (2995)
351. mál, geðheilbrigðismál
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég hef fylgst allvel með störfum þessarar umræddu nefndar. Það kemur mér meira en á óvart að hún skuli skyndilega eiga að ljúka störfum nú þar sem við öll vitum að þessari nefnd hefur nú þegar, og það kom ekki fram í máli ráðherra, tekist að bæta verulega úr t.d. bráðageðþjónustu hér í Reykjavík. Það var ekkert sem gerðist af sjálfu sér, hæstv. ráðh., heldur var það gert fyrir tilstilli þessarar sömu nefndar.
Hér hefur verið unnið mjög mikið starf og að sjálfsögðu tekur það langan tíma þar sem þetta starf hafa unnið sérfræðingar sem allir eru í fullri vinnu og miklu meira en það. Ég ætla þess vegna að vænta þess að ráðherrann láti ekki smákóngadeilur innan geðheilbrigðiskerfisins hafa minnstu áhrif á ákvarðanir sínar heldur reyni að hrinda tillögum þessarar nefndar í framkvæmd, jafnvel þótt einhverjir stórkóngar í kerfinu kunni að hafa verið á móti störfum þessarar nefndar frá byrjun. Hér hefur verið unnið eitthvert merkilegasta starf í tillagnagerð um úrbætur í geðheilbrigðismálum án þess að markmiðið sé ævinlega að byggja þurfi hús. Hér hefur verið lagt til að störf verði samræmd, starfskraftar samnýttir og ég treysti því að hæstv. ráðh. nýti sér starf nefndarinnar og leyfi henni að ljúka starfi sínu í friði.