10.10.1985
Sameinað þing: 1. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í B-deild Alþingistíðinda. (3)
Varamenn taka þingsæti
Aldursforseti (Stefán Valgeirsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 10. okt. 1985.
Þar sem Karvel Pálmason, 3. þm. Vestf., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.“
Sighvatur Björgvinsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.
Annað bréf hefur borist:
„Reykjavík, 13. okt. 1985.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður landskjörinna þm. Alþfl., Magnús H. Magnússon símstöðvarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Eiður Guðnason,
5. landsk. þm."
Magnús H. Magnússon hefur einnig tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.