01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3364 í B-deild Alþingistíðinda. (3006)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er ekki ástæða til að halda þessum umræðum um þingsköp áfram. Það er sama hvaða þingsköp við höfum og hvernig við kunnum að breyta þingsköpum. Hinir einstöku þm. hljóta alltaf að hafa sínar skoðanir á því hvernig hverjum og einum þm. mælist og hvernig hverjum einum ráðherra mælist. Það skal tekið fram að það hefur ekki skort á samvinnu við hæstv. ráðherra fremur en aðra þm. um framkvæmd þingskapa.