01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3365 í B-deild Alþingistíðinda. (3009)
355. mál, iðgjöld bifreiðatrygginga
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Fyrir nokkru urðu umræður utan dagskrár um iðgjöld tryggingafélaga af bifreiðatryggingum. Þar sem hæstv. trmrh. var ekki hér til staðar við þá umræðu taldi ég brýnt að bera fram fsp. þá sem ég hér mæli fyrir til að fá fram afstöðu hæstv. trmrh. til nokkurra atriða er snerta iðgjaldaákvarðanir tryggingafélaganna af bifreiðatryggingum.
Þær fsp., sem ég hef fram borið til hæstv. ráðh., snerta ekki eingöngu það einstaka atriði sem er nýleg hækkun á iðgjöldum bifreiðatrygginga heldur ekki síður það fyrirkomulag sem gildir varðandi ákvarðanir á iðgjöldum tryggingafélaganna. Iðgjaldaákvarðanir tryggingafélaganna hafa sætt mikilli gagnrýni á undanförnum árum, enda hafa þær oft á umliðnum árum verið langt umfram verðlagsþróun. Það samráð sem tryggingafélögin hafa um iðgjaldaákvarðanir hefur eðlilega einnig sætt mikilli gagnrýni og hafa m.a. Neytendasamtökin og FÍB gagnrýnt mikið það samráð og óskað eftir því að iðgjaldaákvarðanir tryggingafélaganna verði settar undir strangt verðlagseftirlit auk þess sem verðsamráð tryggingafélaganna hlýtur að vera brot á verðlagslöggjöfinni og samræmast hvorki eðli né tilgangi frjálsrar verðmyndunar.
Ég tel ekki ástæðu til að lesa fsp. lið fyrir lið sem fram kemur á þskj. 646, en það er ekki síst afstaða trmrh. til slíks verðsamráðs tryggingafélaganna sem ég óska eftir að fá skýr svör við og hvort trmrh. telji ekki rétt að fella iðgjaldaákvarðanir undir ákvæði laga um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti eða með öðrum hætti að setja iðgjaldaákvarðanir undir strangara eftirlit.
Varðandi nýlega verðákvörðun tryggingafélaganna er ljóst að þó að verkalýðsforustan hafi getað knúið fram lítils háttar lækkun á fyrri iðgjaldaákvörðun tryggingafélaganna eftir að tryggingaeftirlitið og trmrh. töldu sig ekkert geta gert til að breyta þeirri ákvörðun um hækkun iðgjaldanna stendur samt eftir að mínu viti að þessi hækkun er langt umfram það sem samræmst getur forsendum nýgerðra kjarasamninga.
Ég spyr því um afstöðu hæstv. ráðh. til þessarar hækkunar og hvort hún hafi verið rædd í ríkisstj.
Varðandi 5. tölul. fsp. um réttmæti útreikninga tryggingafélaganna taldi ég rétt að bera fram þá fsp. til hæstv. ráðh. í ljósi ásakana sem fram komu fyrir nokkru í Helgarpóstinum þar sem því er haldið fram að rangir útreikningar séu lagðir til grundvallar iðgjaldaákvörðun tryggingafélaganna. Ég legg auðvitað engan dóm á réttmæti þessara ásakana, en tel þær það alvarlegar að rétt sé að ganga úr skugga um hvort þær hafi við nokkur rök að styðjast.