01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3370 í B-deild Alþingistíðinda. (3015)

360. mál, hernaðarframkvæmdir

Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram við hæstv. utanrrh. fyrirspurnir varðandi hernaðarframkvæmdir. Að gefnu tilefni vil ég segja: Upplýsingar hafa ekki legið á lausu um slíkar framkvæmdir, hvorki um ákvarðanir um þær né um eðli þeirra. Vil ég í þessu sambandi vitna í ummæli hæstv. fyrrv. utanrrh. sem svaraði fsp. 16. apríl s.l. og skýrði þá frá því hvernig slíkar ákvarðanir bæri að.

Í sama fyrirspurnatíma nefndi hæstv. fyrrv. utanrrh. að til stæði að taka ákvarðanir um byggingu nýrrar sérstaklega styrktrar stjórnstöðvar á Keflavíkurflugvelli á næsta ári og vænta mætti óska frá Bandaríkjamönnum um að koma slíkum framkvæmdum á framkvæmdaáætlun á því ári. Ummæli í svipaða átt er að finna í skýrslu utanrrh. frá sama ári um utanríkismál.

Dæmin sýna, herra forseti, að ákvarðanir um miklar hernaðarframkvæmdir í landinu á borð við Helguvík, byggingu sérstaklega styrktra flugskýla, komu nýrra og langdrægra orustuþotna, og fleira mætti telja, eru teknar af utanríkisráðherranum einum án samráðs fyrir fram við ríkisstjórn eða Alþingi. Samráðið felst síðan í einhvers konar tilkynningarstíl eftir á - ef um slíkt er að ræða á annað borð. Og ég vitna aftur í umræður í fyrirspurnatíma á Alþingi 16. apríl s.l. Þessi framkvæmdamáti er hneyksli, herra forseti, og lítilsvirðing við sjálfstæði þjóðarinnar. Ég tel einnig að hér sé á ferðinni brot á lögum um þingsköp Alþingis, sbr. 15. gr. þar um. Ég hef þess vegna lagt fram þessar fsp. til þess að fá það hér fram og til umræðu hér inni á Alþingi hvort tekin hafi verið ákvörðun um þessa framkvæmd, eins og reyndar gefið var í skyn að gert yrði, og með hvaða hætti það hefur verið gert. Einnig fer ég fram á það í fsp. að hæstv. utanrrh. skýri Alþingi frá því ef einhverjar aðrar slíkar framkvæmdir hafa verið heimilaðar síðan Alþingi fjallaði síðast um þau mál. Ég tel það óviðunandi, herra forseti, að þannig sé að slíkri ákvarðanatekt staðið að Alþingi fá um hana að frétta í tilkynningarstíl, sömuleiðis hæstv. ríkisstjórn og ekkert samráð sé að fyrra bragði haft við utanrmn. Alþingis, hversu miklar og gífurlegar þær framkvæmdir eru sem þar eru á ferðinni.

Ég vil enn minna á að 15. gr. þingskapa Alþingis kveður skýrt á um það að við öll meiri háttar utanríkismál skuli haft samband við utanrmn. Ég tel að það sé að skapast hættuleg hefð fyrir því að þetta ákvæði sé brotið, að lög séu brotin í landinu, vegna þess að meiri háttar hernaðarframkvæmdir eru leyfðar aftur og aftur af hæstv. utanrrh. án þess að farið sé eftir þessu ákvæði. M.a. af þessum sökum hef ég lagt fram fsp. sem gefur að lesa á þskj. 651, herra forseti.