01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3371 í B-deild Alþingistíðinda. (3016)

360. mál, hernaðarframkvæmdir

Utanrrh. (Matthías Á Mathiesen):

Herra forseti. Ég mun svara fsp. hv. þm. en áður en ég geri það vil ég aðeins víkja að því að samkvæmt þingsköpum er gert ráð fyrir, eins og hér kom fram áðan, að utanrrh. leggi skýrslu fyrir Alþingi. Það verður gert innan mjög skamms tíma. Síðan fara fram umræður um hana og þar er að sjálfsögðu hægt að koma að öllum þeim athugasemdum sem hv. þm. kom með hér áðan. Og ég áskil mér rétt til þess að bíða með að svara slíku. Ég vil mjög gjarnan halda mig við það sem þingsköp segja í sambandi við fsp. og svara fsp., sem til mín er beint, en hún er:

„1. Hefur utanrrh. heimilað Bandaríkjaher eða Atlantshafsbandalaginu að hefja framkvæmdir við nýja sérstaklega styrkta stjórnstöð á Keflavíkurflugvelli, eða liggur fyrir beiðni um slíka heimild?"

Það kom fram í skýrslu forvera míns um utanríkismál á síðasta ári, bls. 32, að upplýst var að áform væru fyrir hendi um að byggja nýja styrkta stjórnstöð fyrir varnarliðið í stað núverandi, sem er að öllu leyti ófullnægjandi. Bygging stjórnstöðvarinnar, sem verður alls 1980 m2 að stærð, var formlega heimiluð í október á síðasta ári.

„2. Hefur ráðherra heimilað sömu aðilum og að ofan greinir einhverjar aðrar nýjar framkvæmdir frá því síðast var gerð grein fyrir slíku á Alþingi?"

Svarið við þessari fsp. er: Í október á s.l. ári var varnarliðinu heimilað að hefjast handa um eftirtaldar nýframkvæmdir, auk fyrrgreindrar stjórnstöðvar sem ég gat um áðan:

1. Birgðarými vegna olíubirgðastöðvar í Helguvík, samtals 15 þús. m3 að stærð, það var 3. áfangi.

2. Ratsjárstöð á Gunnólfsvíkurfjalli við Bakkafjörð og ratsjárstöð í Stigahlíðarfjalli við Bolungarvík. Vegaframkvæmdir fyrir ratsjárstöðina fyrir vestan hófust í október á s.l. ári, en í nóvember fyrir austan. Vonast er til að framkvæmdir við stöðvarhúsin hefjist í sumar og verði lokið á tímabilinu 1987-1988. Hvor bygging fyrir sig verður 1150 m2 að grunnfleti.

3. Fyrri hluti framkvæmda við flughlað, akstursbrautir og flugvallarveg vegna nýju flugstöðvarinnar. Samið var um aðskilnað á rekstri farþegaflugs frá starfsemi varnarliðsins á árinu 1974 og gert ráð fyrir því nú.

4. Þróunarstöð fyrir þotuhreyfla fyrir nýjar orustuflugvélar varnarliðsins.

Þetta er svarið við 2. fsp. Ég hafði áður svarað þeirri fyrri.

Eins og ég gat um áðan: Þegar ég mun leggja skýrsluna fram og hún verður hér til umræðu mun ég áskilja mér rétt til þess að gera grein fyrir því sem varðar þessi mál nú eins og þau standa.