01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3373 í B-deild Alþingistíðinda. (3020)
363. mál, innri öryggismál
Utanrrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Eitthvað hefur nú hv. þm. misskilið allt sem um hefur verið fjallað í þessum efnum, en ég skal láta vera að gera það að umræðuefni, sjálfsagt gefst tækifæri til þess síðar, en svara fsp. á þessu þskj., sem annars að sumu leyti eru að mínum dómi mjög óþinglegar ef það er skoðað ofan í kjölinn. Fyrirspurnirnar eru:
„1. Eru uppi áform í utanrrn. um að koma á fót leyniþjónustu eða öryggislögreglu að erlendri fyrirmynd?" Svarið er nei.
„2. Hverju sætir að utanrrh. reifar slíkar hugmyndir á fundi hjá Varðbergi áður en þær eru kynntar fyrir t.a.m. utanrmn. Alþingis, ríkisstjórn og þingflokkum?" Slíkar hugmyndir hefur utanrrh. ekki reifað á fyrr nefndum fundi svo sem hér er látið í skína.
„3. Telur utanrrh. eðlilegt að starfsmenn ráðuneyta ræði, á þessu stigi málsins, svonefnd „innri öryggismál“ og skýri frá vinnu ráðuneyta þar að lútandi á fundum, þar sem viðstaddir eru meðal annarra erlendir sendiráðsstarfsmenn?" Í fyrsta lagi kannast ég ekki við að í utanrrn. hafi farið fram nein vinna í þessum málum sem hægt hafi verið að skýra frá. Í öðru lagi var ég ekki staddur á þessum fundi sem hér er vísað til. Hvort þar voru erlendir sendiráðsstarfsmenn eða ekki, það er þeirra að segja frá sem á fundinum voru. En ég bendi á að hér var um að ræða fund þar sem menn voru að ræða innri öryggismál landsins og þeir voru þar að setja fram sín sjónarmið en þeir voru þar ekki fulltrúar neinna stofnana eða ráðuneyta.
Til upplýsinga í þessu máli vil ég segja að ég hef lagt fram í ríkisstj. tillögu um að gerð verði úttekt á innra öryggi þjóðarinnar. Þar er öðru fremur átt við varnir gegn alþjóðlegum hryðjuverkum, svo og gegn ólöglegri upplýsingastarfsemi. Og ég segi: Fyrirbyggjandi ráðstafanir gegn slíkum verkum þarf að gera, svo og áætlanir um viðbúnað ef slík mál koma upp.