01.04.1986
Sameinað þing: 67. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3383 í B-deild Alþingistíðinda. (3027)

362. mál, fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga

Flm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Á þskj. 653 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. ásamt þeim hv. þm. Guðmundi Bjarnasyni, Ragnari Arnalds, Kjartani Jóhannssyni og Friðrik Sophussyni. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela fjmrh. í samvinnu við einstök ráðuneyti og Samband ísl. sveitarfélaga að láta gera yfirlit um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. Greint verði á milli samskipta er lúta að framkvæmdum annars vegar og rekstri og ýmissi þjónustu hins vegar. Fram komi skuldbindingar og fjárhagsstaða hvors aðila fyrir sig miðað við árslok 1985. Grg. um þetta efni verði lögð fyrir Alþingi með frv. til fjárlaga fyrir árið 1987.“

Með þessari till. fylgir stutt grg. sem ég vildi leyfa mér að fara yfir, með leyfi forseta:

„Tilgangurinn með þessari till. til þál. er að skýra og draga fram fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. Um áraraðir hefur verið fjallað um samskipti ríkis og sveitarfélaga. Ríkisstjórnir hafa haft einföldun samskipta þessara tveggja stjórnstiga að stefnumiði með það að leiðarljósi að fella saman ákvörðunarvald og fjárhagsábyrgð. Nefndir á vegum ríkis og sveitarfélaga hafa fjallað um málið án þess að verulegar breytingar til einföldunar hafi komist á.

Bráðnauðsynlegt er að árlega liggi fyrir yfirlit um fjárhagsskuldbindingar ríkis og sveitarfélaga. Það yrði ótvírætt til hagræðis og einföldunar allri málsmeðferð fyrir fjvn. Alþingis, fyrir þm. yfirleitt, fjmrn. og önnur ráðuneyti og sveitarstjórnir ef yfirlit sem þetta væri fyrirliggjandi þegar Alþingi fjallar um fjárlög og sveitarstjórnir um fjárhagsáætlanir sínar. Víða hafa aðilar ekki komið á formlegum samningum um sameiginlegar framkvæmdir, en kröfur aftur á móti komið fram sem eru þó engan veginn staðfestar eða viðurkenndar af hlutaðeigandi aðilum. Það er því brýnt að þessi mál séu skoðuð sérstaklega og að ríkisvaldið og sveitarstjórnir komi meiri formfestu á samskipti sín. Hér er ekki síst haft í huga að gerðir verði samningar um sameiginleg verkefni.“

Þessi till. er, eins og ég hef þegar sagt, flutt fyrst og fremst til að draga fram alla þætti fjárhagslegra samskipta ríkis og sveitarfélaga. Með því móti á Alþingi svo og allir hlutaðeigandi aðilar að geta gert sér betur grein fyrir og metið stöðu mála en nú er. Till. þjónar því tvíþættum tilgangi, þ.e. í fyrsta lagi að greiða fyrir umræðu um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og einnig að bæta vinnubrögð í fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þessa till. fleiri orð. Hún skýrir sig raunar sjálf að mínum dómi. Hún er einföld af allri gerð, en ég gerði mér fyllilega grein fyrir því að sú vinna sem till. gerir ráð fyrir að verði innt af hendi er allveruleg. Ég legg ríka áherslu á það, og ég veit að aðrir meðfim. mínir gera það, að þessi till. hljóti ekki síður afgreiðslu á hv. Alþingi en aðrar till. sem hér eru til meðferðar. Ég legg síðan til að till. verði vísað til félmn. að lokinni þessari umræðu.

Umr. (atkvgr.) frestað.