02.04.1986
Efri deild: 68. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3392 í B-deild Alþingistíðinda. (3035)
126. mál, fjáröflun til vegagerðar
Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Frv. það sem hér er til umræðu og staðfestingar væntanlega, staðfestingar á bráðabirgðalögum frá því 20. september 1985 þekkja menn og ástæðulaust held ég að sé að hafa mjög langa ræðu um það. Nál. er ítarlegt og þar er rakið að það hefur verið komið nýju skipulagi og betra á þessa löggjöf sem var orðin slitrótt, margbreytt og brtt. kannske ekki öllum komið fyrir á heppilegustu stöðum í löggjöfinni. Ég held að það sé alla vega til bóta að nefndarmenn og þó fyrst og fremst starfsmenn fjmrn. og stjórnarráðsins hafa hjálpað til að koma þessu í heilsteypt lög. Hvað sem menn vilja segja um efni laganna ætti þetta þó að vera sæmilega aðgengilegt öfugt við það sem áður var. Því fagna auðvitað allir. Ég held að við í nefndinni séum sammála um það atriði þó að menn, eins og að líkum lætur, séu kannske efnislega ósammála í máli sem þessu.
Ég vil geta þess strax í upphafi að annað frv. fylgdi þessu frv. verið lækkaðir og þar stendur í rauninni ekki um breytingu á lögum um tollskrá. Síðan það gerðist hafa tollar á öllum þeim flokkum sem nefndir voru í þessu frv. verið lækkaðir og það stendur í rauninni ekki nema einn flokkur eftir, hvort sem það hefur verið af mistökum eða ekki. Það eru eingöngu snjósleðar sem mundi hækka tollur á, ef ekki yrði gerð á frv. bragarbót og lögunum eins og þau eru nú orðin, úr 70 í 80%. Hæstv. fjmrh. er viðstaddur umræðuna og ég geri ráð fyrir að hann greini þá frá því hvernig með skal fara. Nefndin hefur ekki afgreitt málið, ekki sent frá sér nál. um þetta litla mál. Ég hygg að það væri eðlilegast að á fundi í fyrramálið gengjum við frá því með þeim hætti sem hæstv. fjmrh. vill á því hafa. Ég á ekki von á að hann langi neitt til að tollurinn á þessari einu vörutegund hækki fyrir það að við tókum málið ekki til efnismeðferðar, en væntanlega fáum við upplýsingar um það.
Ég ræddi þetta við fulltrúa úr fjmrn. áðan, en hef ekki haft tækifæri til að ræða við hæstv. fjmrh. Hérna er sem sagt um algjört smámál að ræða og í rauninni eingöngu tæknilega breytingu sem líklega er þó eðlilegt að flytja. Þá gæti það frv. sem staðfest yrði um tollskrána einfaldlega verið ein grein sem orðaðist svo: Tollur á vörum í tollflokksnúmeri 87.02.11 í 1. gr. tollskrárinnar lækki í 70%. Það þyrfti ekkert annað að standa eftir af lögunum til að tollalækkanirnar væru allar í gildi. Væntanlega mun nefndin ganga frá nál. varðandi þetta atriði í fyrramálið.
Það er ýmislegt í þessu frv. sem orkar tvímælis. Einna mest hefur verið rætt um brtt. um heimild til lækkunar á gjaldi þar sem um er að ræða að afkastageta bifreiða nýtist ekki nema að takmörkuðu leyti. Ég hygg að það sé kannske helst það sem hér yrði rætt, sem er á bls. 4 í nál. Það eru þar tvær brtt. um heimildir til handa ráðherra. Það skýrir sig allt saman sjálft og þess vegna ætla ég ekki á þessu stigi að hafa um það fleiri orð, en minni hl. nefndarinnar skilar séráliti og mun áreiðanlega gera grein fyrir afstöðu sinni á eftir.