02.04.1986
Efri deild: 68. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3403 í B-deild Alþingistíðinda. (3045)
126. mál, fjáröflun til vegagerðar
Frsm. meiri hl. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Ég vil aðeins árétta það, sem raunar kom fram í máli forseta, til að það sé alveg skýrt: Það var ekkert samráð haft við þingflokk Alþfl. um boðun þessa fundar kl. 17.30. Ég vil að það sé alveg skýrt og liggi alveg ljóst fyrir. Það var ekkert samráð haft við þingflokk Alþfl. um boðun þessa fundar fyrr en eftir að búið var að taka ákvörðun um það. Það eru þau vinnubrögð m.a. sem mér þykja ekki viðunandi í þessari hv. deild.