02.04.1986
Neðri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3409 í B-deild Alþingistíðinda. (3057)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ingvar Gíslason):
Forseta Nd. hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 2. apríl 1986. Þar sem Friðrik Sophusson, 2. þm. Reykv., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans ósk með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis og þar sem 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Geir Hallgrímsson, hefur tjáð mér að hann geti ekki tekið sæti á Alþingi að óska þess að 2. varamaður, Guðmundur H. Garðarsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“
Þetta er undirritað af Ólafi G. Einarssyni, formanni þingflokks Sjálfstfl.
Guðmundur H. Garðarsson hefur setið á þingi áður á þessu kjörtímabili og nú nýlega og þarf ekki að kanna kjörbréf hans. Ég býð Guðmund H. Garðarsson velkominn til starfa á Alþingi.