02.04.1986
Neðri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3411 í B-deild Alþingistíðinda. (3063)

387. mál, þjónustu- og endurhæfingastöð sjónskertra

Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Við gerð laga nr. 18/1984, um þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra, sem gengur undir nafninu Sjónstöð Íslands, var ákveðið að við stöðina skyldi starfa sérstakur yfirlæknir með sérfræðiviðurkenningu í augnlækningum í fullu starfi og skyldi hann annast stjórn stofnunarinnar. Í lögunum er ráðherra hins vegar heimilað að semja við augndeild sjúkrahúss um að annast læknisþjónustu á vegum stöðvarinnar og yrði yfirlæknir augndeildar jafnframt yfirlæknir stofnunarinnar. Hér á landi er í reynd aðeins starfrækt augndeild við eitt sjúkrahús, þ.e. Landakotsspítalann í Reykjavík, þannig að heimildin er sem stendur eingöngu bundin við þann spítala. Á vegum stöðvarinnar hefur verið brugðið á það ráð að fá augnlækni til að hafa faglega verkstjórn á því starfi sem þar hefur verið unnið. Þessi ráðning fellur ekki að öllu leyti innan ramma laganna eins og fram hefur komið í umfjöllun augnlækna um það mál og þess vegna hefur stjórn stofnunarinnar farið þess á leit að 2. mgr. 2. gr. laganna verði breytt þannig að ráðherra sé heimilt að semja við augndeild sjúkrahúss að annast að einhverju eða öllu leyti læknisþjónustu á vegum stöðvarinnar án þess að yfirlæknir augndeildar yrði sjálfkrafa yfirlæknir stöðvarinnar. Eftir sem áður yrði lagaheimild fyrir því að stöðin fengi sérfræðiþjónustu með samningi við augndeild sjúkrahúss, en tilgangur slíks samstarfs er fyrst og fremst að tryggja fullnægjandi læknisþjónustu á hagkvæman og ódýran hátt þar sem aðeins yrði um að ræða greiðslur fyrir unnin læknisverk hverju sinni.

Stjórn Læknafélags Íslands hefur lýst því yfir að varhugavert sé eða óeðlilegt að tengja eina yfirlæknisstöðu annarri eins og gildandi lög gera og leggur það félag til að því verði breytt. Þessari málaleitan er sinnt með flutningi þessa frv.

Ekki er ástæða til að fara frekari orðum um frv., en ég leyfi mér að leggja til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. heilbr.- og trn. með ósk um að frv. nái fram að ganga á yfirstandandi þingi þannig að stöðin geti starfað eftir því fyrirkomulagi sem hér er lagt til frá og með komandi vori, en þá tekur stöðin formlega til starfa.

Ég legg til að frv. verði vísað til heilbr.- og trn.