03.04.1986
Neðri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3443 í B-deild Alþingistíðinda. (3087)

364. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Á þskj. 694 er nál. frá landbn. sem segir að nefndin hafi athugað frv. og mæli með því að það sé samþykkt óbreytt. Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og Kjartan Jóhannsson.

Þetta frv. um breytingu á lögum Stofnlánadeildar landbúnaðarins er borið fram til þess að skapa möguleika á að lengja lánstíma á lausaskuldalánum bænda og e.t.v. að greiða niður vexti af þeim. Það er ljóst að margir bændur eiga í miklum erfiðleikum með að standa skil á greiðslum vaxta og afborgana af lánum. Í því sambandi er vert að benda á að vanskil við Stofnlánadeildina um síðustu áramót voru 60,1% af gjaldföllnum ársgjöldum. Hefur svo reyndar verið undanfarin þrjú ár. Enn verri skil hafa þó verið við veðdeild Búnaðarbankans eða um 81% af gjaldföllnum ársgjöldum. Árið 1984-1985 var lausaskuldum um 700 bænda breytt í föst lán. Meginskuldir bænda við veðdeildina eru vegna þeirra skuldbreytinga. Rétt er að vekja athygli á því að flestir af þeim, sem eiga í mestum greiðsluerfiðleikum, eru í þessum flokki, sem fengu síðast skuldbreytingu og búa við verstu kjörin - t.d. dollaralán, gengistryggt, með 9,25% vöxtum, lánstími tíu ár, og bankavaxtabréf sem eru til 12 ára með 2,75% vöxtum verðtryggt.

Aðalfundur Stéttarsambands bænda á síðasta hausti ályktaði að nauðsyn bæri til að lengja lánstíma á lánum bænda. Þessa ályktun hefur stjórn Stofnlánadeildar rætt á sínum fundum og orðið sammála um að það sé lífsnauðsyn fyrir bændastéttina að verða við þessum óskum. Samkvæmt stofnlánadeildarlögum er lengsti lánstími 25 ár, en flest framkvæmdarlán eru veitt til 20 ára og er því aðeins hægt að lengja lánstíma á þeim lánum um 5 ár. Það er skoðun mín að sú lausn komi ekki að nægu gagni þar sem þeir eiga í mestum fjárhagserfiðleikum sem eru nú skuldugir við veðdeild Búnaðarbankans eins og fram var tekið. Hins vegar eru veðdeildarlánin til 10 og 12 ára og ef þau væru færð til Stofnlánadeildar væri hægt að lengja þau lán verulega. Ef lengingin væri um 5 ár þyrfti til þess um 17 millj. en ef þessi lán yrðu lengd um 10 ár mundi þurfa til þess um 25 millj. á ári.

Mér þykir rétt að geta í þessu sambandi um stöðu veðdeildarinnar. Gert er ráð fyrir því að ef Stofnlánadeildin yfirtæki skuldir bænda frá veðdeildinni tæki hún jafnháa upphæð í lánum sem deildin skuldar. Útlán veðdeildar námu um s.l. áramót um 510 millj. Útlánin eru þannig að þau eru um síðustu áramót um 528 millj., þ.e. 2,6 millj. óverðtryggt; 37,5 millj. verðtryggt; 128,4 millj. gengistryggt, þ.e. japönsk yen; síðan er það tæp milljón í óverðtryggðum bankavaxtabréfum; 340,8 millj. verðtryggð bankavaxtabréf; og 18,2 millj. áfallnir vextir. Eins og sagt var hér að framan er meiningin að ef úr þessu verður - sem ég tel mikils virði fyrir bændastéttina, að hægt sé að færa þetta á milli - tekur hún við jafnmiklum útlánum og þarna er fært á milli, en eftir yrðu um 15,3 millj. miðað við síðustu áramót sem hvíldi á deildinni.

Eins og hér hefur komið fram taka bændur þetta erlenda lán í bandaríkjadollurum. Þegar lánin voru veitt var ekki vitað í hvaða gjaldmiðli veðdeildin mundi fá þessi lán, en það reyndist vera í japönskum yenum. Árið 1985 var gengismunur deildinni í óhag 26,3 millj., en var hagstæður árið áður um tæpa milljón. Gengismunur deildinni í óhag árið 1985 stafar af misgengi milli dollars og yens. Hvernig gengisþróunin verður getur enginn sagt fyrir, en það sem er fyrirhugað í þessu sambandi - og ég hef athugað möguleika á því og tel líklegt að það takist - er að losna við yenin og að Stofnlánadeildin taki þá dollaralán í staðinn, a.m.k. verði þá gengið frá yfirtökunni á þann veg að vegna misgengis á þessum tveimur gjaldmiðlum verði Stofnlánadeildin ekki fyrir neinum áföllum. Einnig er æskilegt að flest lán til bænda séu á einum stað og þá eðlilegast að það sé í Stofnlánadeild landbúnaðarins enda hefur öll afgreiðsla mála og innheimta, t.d. við veðdeildina, verið innt af hendi af starfsfólki Stofnlánadeildar.

Staða bænda er varðar framkvæmdalán og lausaskuldalán er nátengd í öllum umræðum um lánamál þeirra og verður það varla aðskilið þegar um það er rætt. Það er mun eðlilegra að vinna að því að lengja lánstíma á þegar teknum lánum heldur en að breyta lausaskuldum í föst lán með nokkurra ára millibili eins og gerst hefur s.l. 20 ár. Staða bænda er um þessar mundir á þann veg að á síðari árum hefur ekki verið jafnbrýnt og nú að létta greiðslubyrði þeirra. Forstöðumaður Stofnlánadeildar, Leifur Kr. Jóhannesson, hefur sagt að miklar líkur séu fyrir því að svigrúm sé nú hjá Stofnlánadeild á þessu ári til að lengja lánstímann og mælir eindregið með því að það verði gert.

Ég held að það hljóti að liggja ljóst fyrir hv. þm. hvernig þessi staða öll er og ekki þurfi að hafa fleiri orð um það. En sem sagt: landbn. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.