03.04.1986
Neðri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3462 í B-deild Alþingistíðinda. (3095)
368. mál, selveiðar við Ísland
Guðmundur H. Garðarsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að vera langorður í þessari umræðu, en ég get ekki orða bundist vegna þess að það vill nú svo til að okkur, sem störfum í þessari atvinnugrein sem hefur orðið hvað mest fyrir barðinu á hringorminum, sem er sjávarútvegur og fiskiðnaður, okkur rekur í rogastans að hlusta á sumt af því sem hefur verið sagt í þessari umræðu. Sérstaklega finnst mér það eftirtektarvert að hér er vitnað í, ég segi svokallaða vísindamenn, sem hafa fengið prófessorsnafnbót, sem mér er ekki alveg ljóst hvernig til er orðið. Hér er lesið upp úr ritum og skjölum og vitnað í nafngreinda prófessora eins og þeir séu guðspjallið.
Ég vil sérstaklega mótmæla að hv. 5. þm. Austurl., Hjörleifur Guttormsson, skuli leyfa sér að lesa upp úr þessu riti, sem hann gerði hér áðan og er eftir prófessor Arnþór Garðarsson. Í þessum upplestri komu fram mjög ómerkilegar dylgjur í garð þeirra aðila, sem hafa reynt að gera sér grein fyrir því vandamáli sem hér er til umræðu, sem er hringormur í sel. En að mati flestra sem til þekkja hefur selurinn haft það í för með sér að ormur í fiski hefur stóraukist við landið. Að leyfa sér að lesa það upp eftir þessum prófessor að þeir, sem hafa fjallað um þetta mál og reynt að gera það með þeim hætti sem þeir hafa tök á, að í þeim verknaði felist áróður þess eðlis að það sé verið að heilaþvo þjóðina, að það sé verið að misnota aðstöðuna, og jafnframt er látið að því liggja að e.t.v. séu öll vinnubrögð þessara aðila í sölumálum og framleiðslu með þeim hætti sem prófessorinn leggur út af í sinni grein. Þess konar áburði er ekki unnt að láta ómótmælt. Ég vil enn fremur mótmæla því að svona dylgjur séu hafðar uppi á hv. Alþingi, þótt vitnað sé í prófessor úti í bæ.
Varðandi vísindin og þekkinguna, fáfræði og þekkingarskort, þá kom það upp í huga mínum: Hvað eru vísindi? Á hverju byggjum við okkar þekkingu? Við Íslendingar höfum þurft að byggja okkar þekkingu upp á þeirri reynslu sem eldri kynslóðir hafa látið okkur í té. Við höfum verið fámenn þjóð. Við höfum ekki búið að auðæfum með svipuðum hætti og stórþjóðir hafa gert í þróun vísindagreina. Við höfum ekki haft sambærilegar aðstæður. Þannig að allar tilvitnanir í vísindi með þeim hætti sem gert var hér áðan af hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni finnst mér algjörlega út í hött. Að vitna í einhverja vísindamenn, sem hafa kannske öðlast sína þekkingu fyrst og fremst með bóklærdómi í gegnum gagnfræðaskóla, menntaskóla og háskóla o.s.frv., og jafnvel orðið doktorar erlendis, en hafa aldrei nokkurn tímann komist í snertingu við raunveruleikann á Íslandi, finnst mér gjörsamlega út í hött.
Ég held að þá þekkingu sem við þurfum að byggja á í þessu máli sé fyrst og fremst að finna hjá því fólki, sem starfar í viðkomandi atvinnugrein, sem er í náinni snertingu við það efni sem hér er til umræðu. Það eru sjómenn, það er fiskverkafólk, sem kynnist í eigin starfi að eftir því sem selnum fjölgaði við Ísland, þá jókst ormatíðnin í fiski. Það hefur enginn getað sannað það frekar eða afsannað að ákveðið orsakasamband sé þarna á milli og það mjög sterkt. Það getur verið matsatriði hvort mönnum er sama um það að íslenska þjóðin verði að verja hundruðum milljóna kr. í það að reyna að forða erlendum neytendum frá því að fá fiskflak sem ormur er í. Það getur vel verið að þeir, sem þurfa ekki að kynnast því að þjóðin lifir fyrst og fremst á þessari atvinnugrein og þessum matvælum sem við erum að flytja út í formi fiskflaka, það getur vel verið að þeir sem kynnast því aldrei geri lítið úr þessu, þeim þyki þetta harla ómerkilegt atriði miðað við einhver náttúruverndarsjónarmið eða einhver tilfinningaatriði. En við lifum bara ekki á tilfinningaatriðum. Þetta eru harðar staðreyndir, sem blasa við þeim sem fást við þessa atvinnugrein, að ef ekki er gripið til tiltækilegra ráða til þess að fækka sel við Ísland þá mun það koma hart niður á afkomu fólks á Íslandi. Það mun draga úr þjóðartekjum, bæði vegna þess að afköst í þeirri atvinnugrein, sem skiptir mestu máli fyrir þjóðina, munu dragast niður, munu minnka, jafnframt því sem hættan eykst á erlendum mörkuðum á því að þeir neytendur, sem borga mest fyrir íslenskan fisk, kaupi hann ekki. Þess vegna vil ég ráðleggja mönnum að fara varlega í það að vitna í einhver vísindi eða þekkingu sem byggð er á vísindum sem er í engu sambandi við það sem verið er að tala um.
Ég tel að þau einu vísindi sem menn geta stuðst við í þessum efnum séu fólgin í þeirri þekkingu og þeirri reynslu sem Íslendingar hafa sjálfir í tengslum við það mál sem við erum að ræða um hér. Það hefur ekki verið hrakið að ákveðið og mjög sterkt orsakasamband sé á milli selsins annars vegar og fisksins hins vegar sem er við strendur landsins. Það hefur ekki verið hrakið. Það er staðreynd, og það þekkjum við sem vinnum í þessari atvinnugrein, að þar sem mest er af sel við landið, þar er mest af ormi í fiski. Það hafa menn getað sannað með vísindalegum athugunum, ef menn vilja viðhafa þau orð, í vinnu sinni og verkum í frystihúsum landsins og öðrum vinnslustöðvum. Þar er sú sönnun sem skiptir máli. Öll vísindi byggjast á því að hægt sé að sanna hlutina og ég leyfi mér þess vegna að segja að þar er sú þekkingarfræði sem við eigum að byggja á þegar við erum að fjalla um þetta mál.
Um það atriði, sem mér fannst nú hálf broslegt, að segja að fáfræði og þekkingarskortur sé hinn mesti glæpur, ég satt að segja vissi nú ekki alveg hvar ég var staddur þegar ég hlustaði á þessa setningu, get ég hins vegar tekið undir það að það hlýtur að vera ákveðið böl fólgið í því að vera fáfróður. Því neita ég ekki. En að segja að fáfræði og þekkingarskortur sé glæpur finnst mér satt að segja furðulegt. Þá er verið að færa þetta í tilbúning sem er utan við mitt þekkingarsvið og ofar mínum skilningi. Það er ekki hægt að ákæra mann fyrir fáfræði og þekkingarskort sem hefur kannske ekki haft möguleika til þess að afla sér þeirrar þekkingar sem hann hefði haft vilja og löngun til. Þess eru mörg dæmi í Íslandssögunni. Fátækt og skortur komu í veg fyrir möguleika til menntunar.
Ég ætta ekki að orðlengja þetta frekar. Ég vil endurtaka það að ég mótmæli því að verið sé að viðhafa hér ummæli og dylgjur í garð aðila sem hafa reynt að mæta hinu mikla vandamáli sem er fólgið í því að svona mikill ormur skuli vera í fiski við strendur Íslands. En að okkar viti stafar það sannanlega af því að hringormurinn er í selnum. Ég vil mótmæla því að í umræðum á hv. Alþingi sé það gert með þeim hætti sem hér hefur átt sér stað.
Einnig vil ég undirstrika það að þær ráðstafanir, sem hafa verið gerðar hingað til, hafa verið gerðar af þeim aðilum sem ber skylda til að tryggja að þær sjávarafurðir, sem Íslendingar flytja út, séu í því ástandi að varan sé söluhæf við góði verði. Ég tel það spor í rétta átt að reynt skuli vera að nálgast þetta vandamál með þeim hætti sem birtist í því frv., sem hér er til umræðu, og er því meðmæltur að það verði samþykkt.