03.04.1986
Neðri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3464 í B-deild Alþingistíðinda. (3096)

368. mál, selveiðar við Ísland

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég held að það hafi verið gott að fá frekari umræðu hér um þetta efni, það framhald sem hér hefur farið fram í dag því það hefur fært mér a.m.k. heim sanninn um það að með þessu frv. eru menn á mjög hættulegri braut. Ég er ekki að ætla hæstv. sjútvrh. það að slást í tíð með þeim mönnum, sem hafa talað í umræðunni og hvatt til þess að þetta frv. yrði samþykkt, því þeir þurfa ekki neinna frekari vitna við hvar hundur liggur grafinn. Þeir þurfa engra frekari rannsókna við. Þeir eru búnir að finna sökudólginn. Þeir þurfa engin vísindi, enga frekari þekkingu. Mig mundi ekki undra þó að t.d. hv. 7. þm. Reykv. og hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson ættu eftir að standa saman að einhverri ályktun um það og nú skulum við láta til skarar skríða og leysa kjaravandann í fiskiðnaðinum í landinu með því að leggja til myndarlegrar atlögu við selinn, hvað sem allri vitneskju og allri þekkingu líður. Það er þetta samhengi sem við lesum út úr þessu. (GHG: Við teljum að þekking fólksins í atvinnugreininni séu þau vísindi sem . . .) Ég vara menn við málflutningi af þessu tagi og þeirri hugsun sem að baki liggur. Ég vara menn við að telja það af hinu illa að draga inn í þessa umræðu álit manna sem ég ber traust til í ýmsum greinum, þó ég sé ekki þar með að gera þeirra skoðanir að mínum, eins og prófessors Arnþórs Garðarssonar, og tala um að það sé ósæmilegt að færa þeirra mál hér og rök í þessu og viðhorf inn í umræður á Alþingi um jafnmikilsvert mál. Ég er aldeilis steinhissa.

Herra forseti. Ég veit að ég hef ekki ráðrúm til að bæta mörgum orðum við þetta en ég mæli þessi orð af alvöru. Arnþór Garðarsson benti á að náttúruverndarmenn í landinu hafa farið með löndum í þessum efnum. Þeir hafa verið hógværir í sambandi við málflutning sem hlýtur að rista inn í merg og bein og endurómaði hér, því miður, í máli manna. Það er fleira en peningar í samfélaginu. Það eru líka tilfinningar í samfélaginu og þær ber einnig að virða þó að hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson virðist ekki leggja mikið upp úr þeim. Ég er ekki náttúruverndarmaður af þeim toga að ég telji að menn eigi að láta skerast í odda um hluti. Alls ekki. En ég geri kröfu til þess að menn gangi fram með þekkingu, vitræn vinnubrögð að leiðarljósi, en leyfi sér ekki munað, sem er gersamlega ástæðulaust að gera á þeim tíma sem við nú lifum, að látast ekki vita af eyðunum í okkar þekkingu, vanmætti okkar að mörgu leyti gagnvart flóknu samhengi, eins og hér hefur verið dregið fram. En því miður sönnuðu hv. ræðumenn það, að mér þótti, að þarna er verulega hætta á ferðum vegna einföldunar á flóknu samhengi sem menn eru að reyna að fá lagastoð við hér til þess að geta gengið fram á þann hátt sem ekki er skynsamlegt eða vænlegt til þess að ná árangri - sem ég efast ekki um að við allir viljum stefna að í þessu máli - fyrir þjóðarhag. En þar þarf að ganga fram varlega og reyna að ná samstöðu um þær aðgerðir sem gripið er til hverju sinni. Ná samstöðu um það. Ég er ansi hræddur um að það sé verið að vinna gegn slíku. Og það er ekki það sem við ætlum okkur. Að því eigum við ekki að vinna hér á Alþingi.

Umr. (atkvgr.) frestað.