07.04.1986
Efri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3470 í B-deild Alþingistíðinda. (3101)
272. mál, ríkisendurskoðun
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Frv. með sama heiti og hliðstæðu efni var til meðferðar á Alþingi í fyrra. Ég átti þá nokkurn þátt í því að stöðva afgreiðslu þess, en það hafði þá verið afgreitt frá Nd. og var reyndar komið til 2. umr. í síðari deild.
Við vorum ekki, sem þá skipuðum minni hl. fjh.- og viðskn., á því að frv. væri nægilega vel úr garði gert til að unnt væri að gefa því líf og áttum, eins og ég hef þegar sagt, okkar þátt í því að frv. var ekki afgreitt hér í fyrra. Það ánægjulega í þessu máli er að síðan birtist frv. í þinginu á þessum vetri í verulega breyttri mynd. Það hafa verið sniðnir af því þeir agnúar sem á því voru. Ég hygg að það sé ekkert ágreiningsmál að Alþingi eigi að gera þessa stofnun, Ríkisendurskoðun, sjálfstæðari en hún er nú og setja hana beint undir valdsvið sitt þannig að hún verði raunverulega eftirlitsstofnun Alþingis.
Ég hirði ekki um að tína til þá agnúa sem á þessu máli voru í fyrra. Þeir voru ýmsir mjög viðsjárverðir. Ég held að þessi málsmeðferð sýni að stundum getur verið gæfulegt að flýta sér hægt og þetta mál virðist ætla að fá allfarsæla niðurstöðu.
Ég mæli eindregið með því að frv. verði samþykkt í þeim búningi sem það er nú.