07.04.1986
Efri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3478 í B-deild Alþingistíðinda. (3123)

367. mál, frídagur sjómanna

Árni Johnsen:

Virðulegi forseti. Það er reynsla mín af sjómönnum að þeir vilji ekki láta afmarka of mikið það svigrúm sem þeir hafa til veiða, hvorki með lagasetningu með né á móti um skipun frídaga. Ég segi þetta í tilefni af ræðu hv. síðasta ræðumanns. Það hentar sums staðar við landið t.d. að hafa frí um páska, en á öðrum stöðum ekki. Þetta fer mjög eftir því hvernig fiskur gengur og fiskur veiðist. Þarna á ekki saman í rauninni þegar nefnd eru slík dæmi.

Hitt er annað að það mál sem hv. málshefjandi fjallaði um er mjög mikilvægt mál og ég vil taka undir það í alla staði. Það er auðvitað ekki sanngjarnt á neinn hátt að sjómenn skuli ekki hafa löggiltan frídag á sjómannadaginn. Ég vil taka undir það. Það eru auðvitað ákveðin framkvæmdaratriði sem þarf að hnýta upp í þessu sambandi. Eins og hér hefur komið fram má sérstaklega benda á kaupskipaflotann. Þar horfir allt öðruvísi við og illt að skipuleggja slíkt. En víst eru farmenn sjómenn. Þarna er atriði sem þarf auðvitað að fjalla um.

Það má benda á það einnig í sambandi við þá vinnu sem mun fara fram í hv. nefnd sem tekur við málinu að það er ekki aðeins hvítasunna sem getur stangast á við hinn hefðbundna dag sjómanna heldur einnig kosningadagur. Miðað við þær reglur sem nú gilda getur slíkt komið fyrir tvisvar, þrisvar á öld. Þarna þarf einnig að stilla dæminu upp þannig að það sé á hreinu hvenær sjómannadagur er miðað við tungl og annað sem ástæða þykir að taka tillit til.

En þetta er gott mál og ég vil taka undir það að unnið sé að því að ná þar höfn sem flm. leggja til