07.04.1986
Neðri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3482 í B-deild Alþingistíðinda. (3139)
202. mál, verðbréfamiðlun
Samgrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. er samið af nefnd sem viðskrh. skipaði 15. febr. á s.l. ári. Í nefndinni áttu sæti Sigurgeir Jónsson, þá aðstoðarbankastjóri í Seðlabankanum, sem var formaður nefndarinnar, en aðrir nefndarmenn voru Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri, Eyjólfur Konráð Jónsson alþm., Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður og Markús Sigurbjörnsson borgarfógeti.
Í skipunarbréfi þessarar nefndar segir að henni sé falið að semja reglugerð um meðferð og sölu skuldabréfa og sé til þess ætlast að nefndin athugi hvort rétt sé að binda starfsemi verðbréfamiðlara við sérstakt starfsleyfi, svo og hvort ástæða sé til að herða á eftirliti með verðbréfaviðskiptum m.a. með kröfu um nafnskráningu skuldabréfa og upplýsingaskyldu verðbréfamiðlara gagnvart almenningi og stjórnvöldum. Þá var þess óskað að nefndin athugaði skattalega meðferð skuldabréfa og að hún gerði tillögur til úrbóta í þeim efnum.
Með samningu þessa frv. og sömuleiðis frv. til laga um nafnskráningu skuldabréfa, sem einnig var lagt fram í Ed. Alþingis, hefur nefndin að verulegu leyti lokið störfum. Hún á þó eftir að leggja fyrir ráðuneytið tillögur um skattalega meðferð skuldabréfa.
Samkvæmt þessu frv. verður starfsemi verðbréfamiðlara framvegis háð leyfi viðskrh. og skal veita leyfið að fullnægðum fastákveðnum skilyrðum. Jafnframt er lagt til að í starfsemi þessari verði að fylgja ákveðnum grundvallarreglum sem í senn er ætlað að tryggja öryggi þeirra sem eiga viðskipti við verðbréfamiðlara og að eftirlit megi hafa með þeirri starfsemi.
Fjh.- og viðskn. Ed. gerði nokkrar brtt. við þetta frv., sem ekki eru veigamiklar, en að öðru leyti stóð nefndin að sameiginlegu nál. og afgreiddi Ed. málið með brtt. sem eru á þskj. 640.
Ég tel ekki ástæðu til að hafa þessi orð miklu fleiri, en legg áherslu á að hér er um neytendavernd að ræða. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.