08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3509 í B-deild Alþingistíðinda. (3149)

323. mál, nám í ferðamannaþjónustu

Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Tvívegis höfum við Kvennalistakonur átt frumkvæði að umfjöllun um ferðaþjónustu hér á Alþingi, en sú grein er að okkar mati vanrækt um of og hefur raunar mátt þola illa meðferð stjórnvalda, sbr. hinn illræmda flugvallarskatt og niðurskurð á lögbundnum framlögum til Ferðamálaráðs.

Svo sem alþm. mega vita eiga 10% af söluhagnaði Fríhafnarinnar í Keflavík að renna til Ferðamálaráðs. Var mikil vinna lögð í það á síðasta ári við setningu laga um ferðamál að tryggja jafnar og eðlilegar greiðslur þessa tekjustofns til ferðamála, en það er nú eins og gengur að lög eru eitt og framkvæmd annað og þessar tekur eru enn skornar niður í ár um helming.

Ég minni á þetta vegna þess að þetta hefur m.a. valdið því að Ferðamálaráð er ákaflega illa í stakk búið að gegna sínu hlutverki sem er m.a. að bjóða upp á menntun í ferðaþjónustu. En það er með ferðaþjónustuna eins og aðrar greinar að grunnurinn er veikur ef menntunar- og þekkingarþátturinn er vanræktur.

Það var raunar ætlun mín að leggja fram till. á þessu þingi um nám í ferðaþjónustu. Ég hef lítillega kynnt mér hvernig þessum málum er háttað en ég taldi rétt að fá það skýrt fram hér á Alþingi hvernig þessi mál standa og hvað stjórnvöld hafa hugsað sér að gera til úrbóta. Því spyr ég hæstv. menntmrh. á þskj. 596:

„1. Hvaða nám er nú í boði fyrir þá sem starfa í ferðaþjónustu?

2. Er einhverra breytinga að vænta í þeim efnum? Ef svo er, í hverju yrðu þær breytingar fólgnar?"