08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3511 í B-deild Alþingistíðinda. (3152)
328. mál, öryrkjabifreiðar
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 601 hef ég leyft mér ásamt hv. 3. þm. Vestf. Karvel Pálmasyni að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv. fjmrh. um öryrkjabifreiðar:
„Hvaða ráðstafanir hyggst fjmrh. gera, nú í kjölfar tollalækkana á bifreiðum, fyrir öryrkja sem njóta sérstakra kjara við bifreiðakaup þannig að hlutur þeirra verði ekki lakari en nú er samanborið við hinn almenna bifreiðakaupanda? Er ráðherra tilbúinn að beita sér fyrir söluskattslækkun á bifreiðum til öryrkja í þessu skyni?"
Þessi mál bar hér á góma í Nd. fyrir alllöngu en þá höfðum við hv. þm. Karvel Pálmason lagt fram fsp. okkar til að fá fram sem gleggst svör. Það eru margir sem hér bíða svara og m.a. veit ég að dregist hefur að senda út bréf til þeirra sem sóttu um eftirgjöf og hafa fengið eftirgjöf núna á þessu ári, og áttu að hafa sótt um hana fyrir 15. febr. s.l., en úthlutun þeirra bifreiða er nokkuð löngu lokið. Stjórn Öryrkjabandalagsins hefur eðlilega lagt áherslu á farsæla lausn þessa máls og veit ég að hún hefur verið í viðræðum við hæstv. fjmrh. um það. Í okkar huga, fyrirspyrjenda, er það meginatriði að öryrkjar haldi áfram að hafa ákveðið forskot fram yfir hinn almenna bifreiðakaupanda því að ekki mun af veita miðað við aðstæður fjölmargra þeirra og á það ekki hvað síst við um þá 40 verst stöddu sem árlega fá eftirgjöf sérstaklega og í auknum mæli.
Rétt er að undirstrika alveg sérstaklega að um hinar samtals 550 bifreiðar, sem úthlutað er lögum samkvæmt eftirgjöf á árlega, bárust nú um 1100 fullgildar umsóknir. Þarf það mál vissulega sérathugun. En spurningin nú er um úrlausn fyrir öryrkja í þeim mæli að þeim sé gert það áfram öðrum auðveldara að eignast bifreið, svo mikil nauðsyn sem það er þeim mörgum, m.a. og sér í lagi til að geta stundað eðlilega vinnu við sitt hæfi.