08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3512 í B-deild Alþingistíðinda. (3153)

328. mál, öryrkjabifreiðar

Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Í framhaldi af ákvörðunum um lækkun tolla á bifreiðum hafa mál öryrkja sérstaklega verið skoðuð með tilliti til þeirrar eftirgjafar af tollum sem þeir hafa notið samkvæmt sérstökum heimildarákvæðum. Það var afstaða fjmrn. að eðlilegt væri að öryrkjar mundu njóta áfram hlutfallslega sömu eftirgjafar af tollum og verið hefur þrátt fyrir þá miklu lækkun sem varð fyrir skömmu á tollum af bifreiðum og fór í mörgum tilvikum verulega niður fyrir það sem öryrkjar höfðu áður haft sem ívilnun sér til handa.

Grunnfjárhæðin, sú sem stuðst hefur verið við samkvæmt lögum, hefur verið reiknuð út og miðað við breytingu á vísitölu framfærslukostnaðar frá apríl 1981 til febrúar 1986 og þær breytingar sem gerðar hafa verið á tollalögum, nú síðast með lögum nr. 3/1986, kemur í ljós að að meðaltali ætti eftirgjöf af tollum að vera 21 883 kr. samkvæmt þessari viðmiðun og þá er miðað við þá fjóra gjaldflokka bifreiðagjaldsins sem taka til bifreiða undir 2000 cm3 stærð. Eigi að síður þótti rétt að ákveða að eftirgjöfin yrði 25 þús. kr. af hverri bifreið, sem er nokkuð umfram þessa meðaltalsreglu, og má því segja að þessi ákvörðun feli í sér að hlutfallsleg lækkun á tollum sé nokkru rýmri en áður var, en í meginatriðum hefur verið við það stuðst að öryrkjar nytu hlutfallslega sama afsláttar af tollum og áður.

Að því er varðar úthlutun úthlutunarnefndar á 16 bifreiðum samkvæmt sérstakri heimild í tollskrárlögum verður hér eftir sem áður um fullt afnám af tollum að ræða og það er óbreytt skipan.

Varðandi síðari lið í fsp. hv. þm. er það mín skoðun að ekki eigi að fjölga undanþágum í söluskatti af þessu tilefni. Hitt væri miklu eðlilegra að menn íhuguðu að koma þessum málum í heild sinni fyrir í tryggingakerfinu og styrkir til öryrkja vegna bifreiðakaupa og bifreiðanota yrðu hluti af tryggingakerfinu. Allt það mál þarf þó frekari athugunar við, en ég teldi ekki óeðlilegt að málum yrði skipað á þann veg.