08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3515 í B-deild Alþingistíðinda. (3159)

381. mál, umsvif erlendra sendiráða

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég flutti till. til þál. um takmörkun á umsvifum erlendra sendiráða hérlendis tvívegis og var það tilefni sérstakrar till. og samþykktar utanrmn. sem Alþingi staðfesti samhljóða um þessi efni.

Það var allharður dómur sem hv. 2. þm. Reykn. kvað hér yfir utanrrh. Sjálfstfl. í sambandi við þá útþenslu sem orðið hefði á erlendum sendiráðum hérlendis, þá fyrst og fremst risaveldanna sem eru hér með nífalt fjölmennari hóp starfsmanna bæði en Ísland í viðkomandi ríkjum. Svo mjög hallar þar á. Bandaríkin eru með 44 starfsmenn í janúar 1984 og Sovétríkin með 37 starfsmenn á sama tíma.

Það hefur ekki mikið gerst í þessum efnum samkvæmt upplýsingum utanrrh. Ég hef lagt áherslu á gagnkvæmnissjónarmið í þessu efni, svo sem réttur stendur til samkvæmt Vínarsáttmála, minni í því sambandi á takmarkanir gagnvart íslenskum sendiráðsstarfsmönnum í Sovétríkjunum og á þær hömlur sem lagðar eru á ferðir Íslendinga til Bandaríkjanna, kröfur um vegabréfsáritanir þar sem engar eru gerðar samsvarandi hérlendis. Það er auðvitað ósamboðið fullvalda þjóð að standa þannig að málum.