08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3516 í B-deild Alþingistíðinda. (3161)
381. mál, umsvif erlendra sendiráða
Utanrrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Aðeins út af því sem hv. 5. þm. Austurl. sagði varðandi fjölgun sendiráðsstarfsmanna og þá í tíð hverra sú fjölgun hefði átt sér stað og voru þar nefndir fyrrv. utanrrh. Sjálfstfl. Þeir eru ekki margir á undanförnum tveimur áratugum eða jafnvel þremur.
Ég skal ekki heldur fara í umræður um þau efni hvar og hvenær þessi fjölgun hefur átt sér stað, en í tíð forvera míns held ég að það verði a.m.k. ekki sagt og allar götur aftur til 1956 þurfum við að leita að sjálfstæðismanni í utanrrn.
En ég vil gjarnan taka undir það sem hv. þm. sagði varðandi gagnkvæmni í viðskiptum þjóða og í viðskiptum í sambandi við sendiráðin og tel að við eigum mjög að horfa til þess þegar við setjum slíkar reglur sem við að sjálfsögðu þurfum að hafa í þessum efnum.