08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3517 í B-deild Alþingistíðinda. (3163)
373. mál, sjúkraflutningar
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Á árinu 1978 ákvað dómsmrn. að lögregla skyldi almennt hætta afskiptum af sjúkraflutningum á þeim stöðum þar sem hún hafði haft þá með höndum frá og með 1. jan. 1979 að telja. Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi af verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga sem varð þegar löggæslan færðist yfir til ríkisins.
Þessi breyting tók allnokkurn tíma, eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda, 3. þm. Vestt., sem hefur beint til mín fsp. vegna sjúkraflutninga á Ísafirði. Það mun ekki hafa verið fyrr en á árinu 1982 sem þetta komst til framkvæmda gagnvart Ísafirði og Ísafjarðarsýslum.
Á árinu 1983, í framhaldi af umræðum um samstarf þarna á milli og hagræðingu, skrifaði bæjarfógetinn á Ísafirði bréf þar sem hann bauð samstarf við bæjarstjórn. Ég vil lesa nokkuð af því sem í bréfinu stendur, með leyfi forseta:
„Dómsmrn. hefur heimilað bæjarfógetaembættinu að ljá atbeina sinn til sjúkraflutninga á Ísafirði og í Ísafjarðarsýslum að næturlagi, þ.e. frá kl. 17 til kl. 8, með eftirfarandi hætti:
1. Lögreglan á Ísafirði annist símavakt er einnig taki til brunaútkalla.
2. Lögreglumaður komi til aðstoðar við sjúkraflutninga á móti starfsmanni Ísafjarðarbæjar. Þá er gert ráð fyrir því að í flestum tilvikum muni vera heppilegast að lögreglumaður aki sjúkrabifreið á vettvang þangað sem bakvaktarmaður bæjarins komi.
3. Ef lögreglumenn á vakt geta ekki sinnt útkalli vegna anna verði lögreglumaður kallaður til á aukavakt. Bæjarsjóður Ísafjarðar greiði allan kostnað af þeirri aukavakt. Rétt er þó að bæjarsjóður hafi áfram tvo menn á bakvakt frá kl. 17 á föstudögum til jafnlengdar á sunnudögum, en á þeim tíma er að jafnaði örðugra en ella að tryggja sérstaka aðstoð lögreglu.
4. Lögreglumenn skulu jafnan eiga kost á nauðsynlegri fræðslu og tilsögn um meðferð sjúkra og slasaðra embættinu að kostnaðarlausu.“
Aðstoð þessi var boðin í júlí 1983, en mér er ekki kunnugt um af hverju ekki hefur orðið úr samstarfi á þessum vettvangi. Þáttur lögreglunnar á Ísafirði við sjúkraflutninga í dag er sá að hún annast símavakt fyrir sjúkraflutninga og brunaútköll að næturlagi frá kl. 17 síðdegis til kl. 8 næsta morgun. Þá sinnir lögreglan einnig neyðarflutningum.
Það má því segja að dómsmrn. hafi heimilað ákveðið samstarf sem ekki hefur orðið úr nema að litlu leyti, en hins vegar hefur ráðuneytið neitað þátttöku í kostnaði þar sem það telur að sjúkraflutningar séu verkefni sveitarfélaga en ekki ríkisins.
Síðari spurning á þskj. 673 er: „Í hvaða bæjar- og sveitarfélögum er samstarf um sjúkraflutninga á milli löggæslumanna og bæjar- og sveitarstjórna?"
Samstarf er um sjúkraflutninga í Vestmannaeyjum og á Akranesi og hefur verið gert samkomulag þar að lútandi þannig að bæjarsjóðir greiði þá hluta a.m.k. af þeim kostnaði sem af því stafar. Þá sinnir lögreglan í Árnessýslu enn fremur flestum sjúkraflutningum í sýslunni og á Selfossi, en þar fær lögreglan að sjálfsögðu greitt fyrir flutningana og að mati yfirlögregluþjóns er það ekki óhagkvæmt fyrir lögregluna.
Að lokum skal svo tekið fram að sums staðar er það þannig að lögreglumenn annast akstur sjúkrabifreiða í sínum frítímum. Slíkt samkomulag er t.d. í Rangárvallasýslu þar sem Rauðakrossdeildin rekur sjúkrabíla eins og víðar mun vera og þar er samningur um að lögreglumenn annist aksturinn í sínum aukatímum. Ég held að það fyrirkomulag reynist þar mjög vel.
Friðjón Þórðarson: Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég geta þess að ég hef aldrei fallist á þá reglu, sem hér var nefnt að tekin hafi verið upp 1978, að slá því föstu að lögreglumenn skuli ekki koma nálægt sjúkraflutningum. Þvert á móti hef ég af þessu margra ára reynslu og tel fara mjög vel á því að lögreglumenn annist sjúkraflutninga a.m.k. þar sem það á við. Ég viðurkenni að vísu að það eru breytilegar aðstæður, en ég hygg að þetta gefist vel víða. Ég man eftir því að á Akranesi lá við borð að lögreglumenn hættu sjúkraflutningum, en það mál var tekið upp og náðust samningar um að lögreglan annaðist sjúkraflutninga áfram. Ég hef ekki heyrt annað en mjög góð reynsla sé af því.