08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3518 í B-deild Alþingistíðinda. (3164)

373. mál, sjúkraflutningar

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég geta þess að ég hef aldrei fallist á þá reglu, sem hér var nefnt að tekin hafi verið upp 1978, að slá því föstu að lögreglumenn skuli ekki koma nálægt sjúkraflutningum. Þvert á móti hef ég af þessu margra ára reynslu og tel fara mjög vel á því að lögreglumenn annist sjúkraflutninga a.m.k. þar sem það á við. Ég viðurkenni að vísu að það eru breytilegar aðstæður, en ég hygg að þetta gefist vel víða. Ég man eftir því að á Akranesi lá við borð að lögreglumenn hættu sjúkraflutningum, en það mál var tekið upp og náðust samningar um að lögreglan annaðist sjúkraflutninga áfram. Ég hef ekki heyrt annað en mjög góð reynsla sé af því.