08.04.1986
Sameinað þing: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3523 í B-deild Alþingistíðinda. (3172)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Forseta þykir leitt að hv. 5. þm. Austurl. telur að hann hafi misfarið með vald sitt varðandi ákvörðun um synjun utandagskrárumræðu. Forseti gerir sér grein fyrir að það er stundum álitamál hvað á að leyfa og hverju á að synja í þessu efni. Forseti leitast við að athuga málið hlutlægt hverju sinni. Og það skal tekið hér fram að það kemur þó nokkrum sinnum fyrir að það er óskað umræðu utan dagskrár, en það er fallið frá þeirri ósk eftir viðræður við forseta. Menn sannfæra hvorn annan eða láta sannfærast um það sem er rétt niðurstaða.

Nú hefur hv. 5. þm. Austurl. mótmælt þeirri ákvörðun forseta að leyfa ekki utandagskrárumræður þær sem hér hefur verið vikið að. Það skal tekið fram um það sem hv. 5. þm. Austurl. sagði um 32. gr. þingskapa og skilning hans á þýðingu 32. gr. þingskapa að forseti er sammála því sjónarmiði og hefur oft tekið fram. En það er m.a. svo tekið til orða að þm. geti tekið til máls. Og þetta orðalag kom einmitt inn í þingsköpin vegna þeirrar venju, sem hafði skapast um umræður utan dagskrár, að menn töldu að það væri ekki hægt að hafa slíkar umræður nema ráðherra vildi og vildi taka þátt í þeim. Það er litið svo á að þm., hver sem er, þurfi ekki að hlíta neinni neitun af hálfu ráðherra þegar um er að ræða utandagskrárumræðu skv. L málsgr. 32. gr.

Hins vegar verður að líta svo á að forseti verði að meta það hverju sinni hvort fyrir hendi eru þær ástæður sem liggja fyrir utandagskrárumræðum, að málið sé svo aðkallandi að ekki sé þess kostur að fresta því og það hljóti meðferð samkvæmt venjulegum leiðum.

Þetta er almennt um þetta að segja. En með því að það hefur verið mótmælt ákvörðun forseta um þessa tilteknu utandagskrárumræðu þykir forseta rétt að vekja athygli á að útbýtt var á þessum fundi skýrslu utanrrh. um utanríkismál. Það skal og vakin athygli á því að það var fyrir nokkrum dögum ákveðið að umræða um þessa skýrslu færi fram í næstu viku. Telja má að það sé ekki eðlilegt, nema eitthvað sérstakt komi til, að taka til umræðu utan dagskrár mál varðandi kjarnorkumál á Norðurlöndum þar sem um slík mál er fjallað í skýrslu utanrrh. og skýrslan verður til umræðu eftir nokkra daga.

En spurningin er: Eru hér sérstakar aðstæður? Og aðstæðurnar eru þær, eins og kom fram í máli hv. 5. þm. Austurl., að danska þjóðþingið hefur samþykkt tiltekna ályktun um kjarnorkumál og gert er ráð fyrir að þessi ályktun komi til umræðu á fundi utanrrh. Norðurlanda, en hæstv. utanrrh. Íslands fer utan á morgun til þess að sitja þennan fund.

Á fundi utanrmn. í gær, skal upplýst, var gert ráð fyrir að utanrrh. tæki ekki afstöðu til samþykktar danska þjóðþingsins fyrr en að athuguðu máli og eftir að hafa rætt málið á fundi í utanrmn. sem verður n.k. mánudag.

Með tilliti til þessa, sem ég hef nú greint frá, þótti ekki ástæða til að verða nú við ósk um utandagskrárumræðu um þetta mál.

Það skal svo að lokum tekið fram að forseti hefur farið þess á leit við hæstv. utanrrh. að ekkert verði gert í þessu máli sem varðar ákvörðunartöku fyrr en málið hefur komið til umræðu í Alþingi í næstu viku.