08.04.1986
Sameinað þing: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3527 í B-deild Alþingistíðinda. (3177)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég varð satt að segja svolítið hissa á langlundargeði hæstv. forseta undir ræðu hv. 3. þm. Reykv. því að hún fjallaði hreint ekki um þingsköp, alla vega ekki sú langa frásögn sem hann flutti af fundi í Kaupmannahöfn um mánaðamótin nóv.-des. Það átti ekkert skylt við þingsköp.

Ég vildi aðeins bæta örfáum orðum við þessa umræðu, m.a. vegna þess að ég sat fund utanrmn. sem haldinn var í gær og þar sem enginn ágreiningur var og þar sem enginn hreyfði mótmælum gegn því að þetta mál yrði rætt á næsta fundi nefndarinnar n.k. mánudag að lokinni ferð hæstv. utanrrh. á fund utanríkisráðherra Norðurlandanna sem haldinn verður á morgun. Um það var enginn ágreiningur. Það er ekki verið að skýra frá neinum efnisatriðum eða umræðum í utanrmn. Það er verið að skýra frá afgreiðslu mála og slíkt hlýtur að vera heimilt og er ekkert trúnaðarmál.

Í tillögu, sem samþykkt var hér samhljóða í fyrra og hv. 2. þm. Norðurl. v. vitnaði til, er fjallað um könnun á hugsanlegri aðild Íslendinga að kjarnorkuvopnalausu svæði. Sú könnun stendur yfir. Henni er ekki lokið. Þetta mál er að öllu leyti í eðlilegum farvegi og umræða um það í dag utan dagskrár hefði ekkert bætt, engu breytt og ekkert aukið við þá vitneskju eða þekkingu sem er til staðar. Það er eðlilegt að þetta mál verði rætt í beinum tengslum við þá skýrslu utanrrh. sem lögð var fram í dag og verður rædd eftir fáeina daga. Þess vegna er þetta eðlilegt og satt best að segja kemur þessi beiðni hv. 5. þm. Austurl. mér mjög á óvart. Hún kemur satt að segja afskaplega mikið á óvart.