08.04.1986
Sameinað þing: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3531 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir þær fsp. sem voru bornar fram af hv. 3. landsk. þm. til hæstv. utanrrh. og vænti þess að hæstv. ráðherra sjái sér fært að svara þeim áður en þessari þingskapaumræðu lýkur.
Ég vil einnig leyfa mér, herra forseti, að taka sérstaklega undir það sem kom fram hjá hv. 4. þm. Norðurl. v. að það getur verið afskaplega óskynsamlegt að setja þessi mál í hendurnar á utanríkisráðuneytunum. Ég er alveg sammála honum um það. Og ég var ekki heldur að gera neina tillögu um slíkt, að það yrði gert einhliða, heldur að utanríkisráðuneytin með sínum embættismönnum fylgdust með þessum málum. En auðvitað gerði þingið það líka því að ég deili alveg skoðunum með hv. 4. þm. Norðurl. v. á því að það væri vægast sagt varasamt og hæpið að ætla utanrrn. að hafa forsjá þessa máls einvörðungu á sínum vegum, jafnvel á undirbúningsstigi. Þar erum við hv. 4. þm. Norðurl. v. sammála.
Hér hefur það nokkuð verið gagnrýnt af hv. 5. landsk. þm. og fleirum að í þessum umræðum hafi verið dregin inn efnisleg atriði þeirra mála sem hefur verið tæpt á, þ.e. varðandi kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndum. Og um það er rætt að þm. eigi eingöngu að tala um þingsköp. Þingsköp eru til þess að setja ramma um störf þingsins. Fyrir ákveðnum ákvörðunum varðandi þingsköpin, m.a. utandagskrárumræðu, liggja iðulega efnislegar og pólitískar ástæður og það er óhjákvæmilegt að þm. sem vilja flytja mál geri grein fyrir hinum efnislegu og pólitísku ástæðum með rökum. Hvort sem menn fallast á þau rök eða ekki hljóta þm., sem óska eftir pólitískri umræðu utan dagskrár, að gera grein fyrir sínum rökum efnislega og pólitískt. Það er útilokað að gagnrýna það, eða hvernig hugsa hv. þm. sér að slík umræða fari fram ef hvergi er minnst á efnisleg atriði eða pólitísk atriði? Þingsköpin eru orðin til úr ákveðnum þjóðfélagslegum veruleika, hefð, sögu, eftir starfshætti Alþingis um margra ára bil. Þingsköpin eru ekki orðin til spunnin ofan úr loftinu, til í einhverju vakúmi, tómarúmi. Þau eiga við ákveðin rök að styðjast, svo og beiting þeirra á hverjum tíma. Þess vegna er það í rauninni fráleitt að mínu mati að gera kröfur til þess að þm. ræði um þingsköp og utandagskrárumræður án þess að koma einhvern tíma inn á efnisleg atriði mála til þess að rökstyðja sína afstöðu, eins og ég gerði áðan. Ég hefði sjálfsagt mátt gera það í styttra máli en hefði líka mátt gera það í mikið ítarlegra máli vegna þess að það var margt mjög fróðlegt sem fram kom varðandi afstöðu einstakra flokka á áminnstri ráðstefnu í Kaupmannahöfn en ég taldi ekki viðkunnanlegt að fara að efna til þeirra umræðna í umræðum um þingsköp en væri vissulega ástæða til að taka um það lotu við síðara tækifæri. Og ég veit að hv. þm. Eiður Guðnason veit hvað ég á við.
Ég er alveg sammála hv. 2. þm. Norðurl. v. um það að fyrirmæli í þessu efni almennt liggja fyrir. Ég held hins vegar að það væri í samræmi við þann góða anda sem náðist, þegar tillagan var samþykkt samhljóða í fyrra, að þm. ræði í einum hálftíma utan dagskrár um þessi mál áður en hæstv. ráðherra fer á mikilvægan fund. Ég held að það sé í samræmi við það góða samkomulag sem menn þá náðu. Vilja menn spilla því samkomulagi? Eru einhverjir fyrirvarar einhvers staðar hér í þinghúsinu í sambandi við það samkomulag? Eru kannske til aðilar, hv. þm., hér í þessum sölum sem hefðu síður viljað standa að því samkomulagi, eða hvað? Eða vilja menn ekki stuðla að því að unnið sé eftir því af heilum hug svo sem gert var þegar samkomulagið náðist og samþykktin var gerð samhljóða á hv. Alþingi?
Ég held að það sé ekki til að styrkja framkvæmd samhljóða þál. um utanríkismál að neita umræðum af því tagi sem hér hefur verið farið fram á. Ég held að við þurfum á öllum sviðum að reyna að stuðla að því að þetta samkomulag og sá andi sem skapaðist í kringum það haldi sem lengst áfram, einnig í næstu skrefum varðandi utanríkismálaumræðu og ákvarðanir á hv. Alþingi Íslendinga. Þess vegna er það rétt sem hæstv. forseti hefur sagt. Auðvitað á að reyna að leita samkomulags í málum af þessu tagi. Það dugir ekki að menn beiti fyrir sig þvergirðingslegum neitunum hver við annan og er ég þá ekki að áfellast forseta frekar en aðra í þessu efni. Við verðum eins og viti bornar manneskjur að reyna að nálgast samkomulag með rökum og gagnrökum og hlýða hvert á annað og bera virðingu fyrir sjónarmiðum hvers annars. Lýðræði er ekki það að bera menn atkvæðum í meiri hluta og skipta mönnum í meiri hluta og minni hluta. Lýðræði er ekki síður það að bera virðingu fyrir sjónarmiðum annarra, að hlýða á þau og sýna þeim fulla tillitssemi hver svo sem þau sjónarmið kann að bera fram.
Þetta var örlítil áminning til hv. meiri hl. Alþingis sem ég sagði í fjórum síðustu setningum mínum.
Ég held hins vegar að í framhaldi af þessum umræðum sé óhjákvæmilegt að ræða þessi utandagskrármál. Allir hafa lagt sig fram um, hæstv. forseti og hv. þm., að framkvæma þessi nýju þingsköp, gengið allvel, en auðvitað ekki 100%. Þetta verður ekki fullkomið og endanlegt frekar en önnur mannanna verk. Hér höfum við ekki hitt á hina endanlegu fullkomnun í þingsköpum í eitt skipti fyrir öll í þingsögunni. Það er alveg ljóst. Þess vegna hljótum við að mega leyfa okkur að efast og velta því fyrir okkur hvort ekki er nauðsynlegt að skýra einhverja þætti þessara mála aðeins nánar. Reynslan í vetur er sú að það sé nauðsynlegt að skoða þessa þætti aðeins betur.
Og svo að lokum þetta, herra forseti: Ég mun gera ráðstafanir til þess að fá yfirlit yfir tilefni utandagskrár umræðna á undanförnum árum. Ég hygg að það yrði fróðlegt fyrir alþm. að fá að hafa það yfirlit fyrir framan sig þannig að menn gætu áttað sig á því af hvaða tilefnum utandagskrárumræður hófust. Ég veit að við erum nú að vinna úr nýjum þingsköpum, en hitt er ljóst að tilefni utandagskrárumræðna hér á árum áður hefur oft og iðulega, leyfi ég mér að segja, herra forseti, í fullri vinsemd, verið minna en það sem nú hefur verið nefnt af allri hógværð af hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni.