08.04.1986
Sameinað þing: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3535 í B-deild Alþingistíðinda. (3188)
Um þingsköp
Guðrún Agnarsdóttir:
Aðeins örfá orð, herra forseti, vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. v.
Ég var ekki að efast um heiðarleika hæstv. utanrrh., að hann mundi standa við þá samþykkt sem Alþingi hefur þegar gert, heldur tel ég það rétt í þessari umræðu að skoðun hans komi afdráttarlaust í ljós hér.