09.04.1986
Sameinað þing: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3539 í B-deild Alþingistíðinda. (3199)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Forseti vekur athygli á ákvæðum þingskapa sem nú koma í fyrsta sinn til framkvæmda, ákvæðum 2. mgr. 18. gr. og 6. mgr. 28. gr. þar sem segir að lagafrv. og þáltill. sem útbýtt er sex mánuðum eftir þingsetningu verði því aðeins tekin til meðferðar að meiri hluti þm. í viðkomandi deild eða Sþ. samþykki það. Samkvæmt þessu er á morgun síðasti dagur til útbýtingar lagafrv. og þáltill. sem teknar verða til meðferðar á þessu þingi nema afbrigði verði veitt. Þess vegna eru í dag síðustu forvöð að afhenda á skrifstofu þingsins þingmál ef þm. vilja að mál þeirra hljóti meðferð án þess að leitað sé afbrigða.