17.10.1985
Sameinað þing: 4. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (32)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Umræðan fer þannig fram að umferðir verða tvær. Í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að 30 mínútur og þingflokkar annarra en forsrh. 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi: Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samtök um kvennalista og Bandalag jafnaðarinanna.
Ræðumenn verða þessir: Af hálfu Framsfl. talar auk forsrh. í fyrri umferð Halldór Ásgrímsson sjútvrh. í síðari umferð. Fyrir Alþb. talar Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v., í fyrri umferð og Guðmundur J. Guðmundsson, 7. þm. Reykv., í þeirri síðari. Ræðumenn Alþfl. verða Jóhanna Sigurðardóttir, 2. landsk. þm., og Jón Baldvin Hannibalsson, 5. þm. Reykv., í fyrri umferð og Jón Baldvin Hannibalsson, 5. þm. Reykv., í síðari umferð. Af hálfu Sjálfstfl. talar Þorsteinn Pálsson fjmrh. í fyrri umferð og Friðrik Sophusson, 2. þm. Reykv., í síðari umferð. Fyrir Samtök um kvennalista talar Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 11. þm. Reykv., og Kristín Halldórsdóttir, 7. landsk. þm., í fyrri umferð og Guðrún Agnarsdóttir, 3. landsk. þm., í þeirri síðari. Ræðumenn Bandalags jafnaðarmanna verða Kolbrún Jónsdóttir, 8. landsk. þm., og Stefán Benediktsson, 8. þm. Reykv., í fyrri umferð og Kristín S. Kvaran, 1. landsk. þm., í síðari umferð.
Hefst nú umræðan.