09.04.1986
Efri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3539 í B-deild Alþingistíðinda. (3200)

272. mál, ríkisendurskoðun

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Á milli umræðna hefur hv. fjh.- og viðskn. tekið mál þetta til skoðunar út af minni háttar atriði sem í ljós kom og skýrir sig af framhaldsnál. og lítilli brtt. sem flutt er. En nál. hljóðar á þessa leið, með leyfi forseta:

„Nefndin er sammála um að leggja til að frv. verði samþykkt eins og það lítur út eftir 2. umr. í Ed. Þó vill nefndin leggja til þá breytingu að niðurlagsákvæði 3. tölul. 13. gr. frv., um 40. gr. laga nr. 86/1985, verði fellt brott. Í þessu felst ekki að nefndin telji að ríkisviðskiptabankar skuli undanþegnir endurskoðun af hálfu ríkisendurskoðunar heldur telur nefndin nauðsyn bera til að hugað sé að breytingum á ýmsum öðrum ákvæðum nýrra viðskiptabankalaga varðandi skoðunarmenn. Beinir nefndin því til ríkisstj. að hún láti fara fram slíka endurskoðun á lögum um viðskiptabanka og leggi fram sérstakt frv. um það efni þegar þing kemur saman á hausti komanda.“

Undir þetta rita allir nm. og flytja um það sérstaka brtt. á þskj. 754, þ.e. að 40. gr. laga nr. 86/1985 verði ekki felld úr lögum eins og mörg ákvæði önnur sem þar eru upp talin, og er þetta efnislegt að sumu leyti en tæknilegt atriði líka sem ég þykist vita að allir hv. þingdeildarmenn séu sammála um og fjölyrði ekki um frekar.