09.04.1986
Efri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3541 í B-deild Alþingistíðinda. (3207)
128. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Hér er um lítið mál að ræða, sem þó hefur valdið bæði mér og öðrum dálitlum heilabrotum hvernig með skyldi fara, en það er staðfesting á brbl. frá í fyrrahaust um breytingu á tollskrá varðandi lækkun á tollum á bifreiðum og snjósleðum. Þetta er fylgifrv. með því frv. sem hefur verið til umfjöllunar hér að undanförnu um fjáröflun til vegagerðar og staðfestingu á því og breytingar. En svo er um þetta mál að nánast er efni þess útrunnið og hefði þess vegna út af fyrir sig mátt láta þessi lög daga uppi því að lækkun á bílatollum hefur orðið miklu meiri síðar eins og alkunna er og þess vegna hefði þetta frv. kannske að ósekju mátt daga uppi og brbl. falla úr gildi við þingslit. En ef þau hefðu gert það hefði þó eitt tollskrárnúmer staðið eftir, þ.e. 87.02.11 sem fjallar um snjósleða. Afleiðing af því hefði orðið að tollar á snjósleðum hefðu hækkað lítillega. Það hefur ekki verið hugmynd neins að hækka tolla á slíkum tækjum heldur fremur að lækka þá. Einfaldast í sniðum þótti þess vegna að fella niður öll tollnúmer við samþykkt frv. önnur en þetta eina og ákveða að lækkunin skuli vera í 70% úr 80 á snjósleðunum eða sama og ákveðið var í brbl. Það yrði þá sem sagt þessi eini tollflokkur sem lögfestur yrði nú og þar með alls réttlætis gætt.