04.11.1985
Neðri deild: 12. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (321)
28. mál, skattafrádráttur fyrir fiskvinnslufólk
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Það er svolítið einkennilegt að kvennaliðið eins og það leggur sig kemur í röð upp í ræðustól til þess að finna að því að konur sem standa undir þessu þjóðfélagi fái einhverjar kjarabætur, jafnvel þó í skattaafsláttarformi sé. Ég held að þessar blessaðar konur ættu að hugsa sig betur um og kannske leggjast undir feld eins og tíðkaðist hér áður fyrr þegar mikið lá við. Auk þess virðast þær ekki einu sinni vita um hvað þær eru að tala, m.a. þegar þær tala um skattaafslátt sjómanna á sínum tíma.
Sá hagur sem sjómenn fengu með 10% skattaafslætti á sínum tíma var veittur í staðinn fyrir annað sem þeir slepptu. Þar var kaup kaups.
Til stendur að leggja niður tekjuskatt í áföngum og ég held að meira að segja þeir sem talið hafa tekjuskatt nauðsynlegan til lífskjarajöfnunar séu uppgefnir vegna þess að við blasir að tekjuskatturinn er eingöngu launamannaskattur. Þetta vita orðið allir. En það er bara ekki búið að fella þennan tekjuskatt niður. Á meðan tel ég að það sé einmitt ágætt ráð til að styðja við láglaunafólkið sem vinnur hin erfiðustu störf í þjóðfélaginu, í fiskvinnslunni, að bæta kjör þeirra með því að leyfa þeim ákveðinn skattaafslátt. Það eina sem mér finnst verulega að þessu frv. er að þar er að mínum dómi alls ekki nógu langt gengið. Í staðinn fyrir 10% hefði ég a.m.k. viljað sjá 20% og helst meira. Raunar eru mörg rök fyrir því að þessar konur sem halda uppi þessu þjóðfélagi ættu að fá alla sína vinnu skattfría.
Hvað eru margar umsóknir um þessi störf þegar þau eru auglýst? Þær eru svo gott sem engar, auðvitað. Ef auglýst eru störf annars staðar í þjóðfélaginu, í þjónustu og verslun, í hinum opinbera geira er slegist um hvert sæti. Bendir það til þess að það fólk sé sambærilega launað og fólkið í fiskvinnslunni? Alls ekki. Staðreyndin er ósköp einfaldlega sú að íslenska þjóðin lifir enn á fiski og á eftir að gera það um langa hríð. Það vantar fólk; það nauðvantar fólk. Það vantar þúsundir manna í þennan undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar svo að þessi þjóð geti lifað. Það þýðir ekkert að halda fram úr þessum ræðustóli, af kvenmannsmunni, að eins illa sé komið fyrir fólki sem er í þjónustu og verslun. Hér væri ósköp einfaldlega engin þjónusta og verslun ef frumframleiðslugreinarnar stæðu ekki undir þeirri þjónustu; svo einfalt er það.
Hvernig á að laða þetta fólk til þessara starfa? Það þarf að gera þessi störf að einhverju leyti eftirsóknarverð og það er auðvitað unnt með ýmsum hætti, með betri aðbúnaði, manneskjulegra vinnuumhverfi og hærri launum. En hvernig er umhorfs í þessum atvinnuvegi þjóðarinnar, í úfgerð og fiskvinnslu? Hafa menn og jafnvel konur ekki einnig tekið eftir því að hver togarinn af öðrum er boðinn upp með feiknaskuldir á bakinu? Og hvers konar skip eru þetta? Eru þetta óreiðuskip? Eru þetta skip sem ekki hafa aflað eða hafa þau eytt meiru en búast mátti við við þessi skilyrði? Alls ekki. Vel vinnandi togarar sem hafa aflað meira en í meðallagi fyrir feiknafjármuni eru boðnir upp og rifnir út úr sjávarplássunum og fólkið skilið eftir atvinnulaust. Er það kvótanum að kenna? Nei, það er ekki kvótanum að kenna.
Skipin sem hafa verið á uppboði að undanförnu hafa fiskað mikið, og þeir sem gera þau út hafa borgað samviskusamlega 20%, fimmta hvern fisk í sjóðina. Og sumir miklu meira. En það er ætlast til þess af þeim að þeir greiði 20%. Sumum eru boðin þau ógnarkjör að borga meira. Menn geta auðvitað athugað hvernig sá kostnaður útgerðarinnar skiptist, í vinnulaun, olíu, veiðarfæri, fjármagnskostnað, tæki o.s.frv. Það kemur auðvitað í ljós að kostnaðurinn í prósentum er yfir 100%, þ.e. þessi útgerð er auðvitað rekin með bullandi tapi. Og svo hælast menn af því hér í húsinu hversu dýrðleg vaxtastefnan og fjármagnsstefnan í landinu sé sem er auðvitað að setja þetta beint, lóðbeint, á hausinn.
En hvernig er svo með fiskvinnsluna? Hún er sannanlega rekin með bullandi tapi. Svo augljóst má það vera að gjaldmiðillinn sem fiskvinnslan fær fyrir sína söluvöru eru jafnmargar krónur fyrir hvern dollar í janúar og í nóvember, kannske heldur færri í nóvember ef eitthvað er. En innlenda þenslan er yfir þriðjung. Hvernig í ósköpunum halda menn að þetta geti gengið? Er það þessi atvinnuvegur sem á að borga þessu fólki hærra kaup? Þeir vildu allir gera það; þeir vita að þeir fá ekki fólk fyrir þessi laun. Þeir geta bara ekki borgað meira.
Á örfáum undanförnum árum hefur höfuðstóll fiskvinnslufyrirtækja rýrnað um þúsundir milljóna í landinu. Þarna hefur átt sér stað eignaupptaka í svo miklum mæli að enginn á neitt í þessum fyrirtækjum lengur. Auðvitað má ekki við svo búið standa. Það gefur auga leið. Lausnin er auðvitað ekkert auðveld eða einföld. En það þarf að reyna að snúa sér að því að leysa málið. Það þýðir ekki að stinga hausnum undir væng. Ef menn leysa ekki þessi vandamál getum við allir flust beint til Ástralíu ef einhver vill taka við þessu liði.
Það vantar fólk í fiskvinnsluna. Það þarf að laða fólkið til fiskvinnslunnar. Það verður auðvitað ekki gert með öðru en því að bjóða þessu fólki betri kjör. Ef það fær þau ekki inn í peningum verður að láta þetta fólk borga minna. 10% af sköttum er auðvitað allt of lítið. Það á að bjóða þessu fólki þau kjör að það vilji vinna við störfin sem halda uppi öllu mannlífi í landinu.
Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu leggja mitt litla lóð á vogarskálina til þess að þetta frv. megi ná fram að ganga. En ég vil beina því til hv. flm., Sighvats Björgvinssonar, og Guðmundar J. Guðmundssonar, að hækka þessa prósentutölu og vera ófeimnir við.
Umr. (atkvgr.) frestað.