09.04.1986
Efri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3559 í B-deild Alþingistíðinda. (3231)
348. mál, grunnskóli
Flm. (Salome Þorkelsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l., sem ég flyt á þskj. 634, um breytingu á lögum um grunnskóla.
Megintilgangur með þessu lagafrv. er að auka aðild foreldra og nemenda að stjórn og innra starfi skóla. Grunnskólinn er menntastofnun og hefur samkvæmt lögum fyrst og fremst það hlutverk að mennta og fræða börn og unglinga. Síðustu áratugi hafa orðið miklar breytingar á þjóðfélagsháttum, ekki hvað síst er varðar líf fjölskyldunnar. Atvinnuhættir hafa breyst og þátttaka kvenna í atvinnulífinu hefur aukist svo að nú stunda um 80% þeirra atvinnu utan heimilis. Einnig hefur fjöldi barna, sem dvelst hjá öðru foreldri sínu, farið vaxandi og lætur nærri að um sjötti hver nemandi í bekk sé barn einstæðs foreldris.
Í kjölfar þessa fylgja ný viðhorf til hlutverks skóla. Ætlast er til að þeir sinni í ríkara mæli en áður ýmsum þáttum uppeldis og umönnunar sem ekki falla beint undir hefðbundnar námsgreinar og fræðslu. Það kemur því í hlut grunnskólans að taka í auknum mæli að sér gæslu barna og jafnt líkamlega sem andlega umönnun þeirra. Þessi þróun hefur í för með sér vaxandi þörf á sterkum tengslum milli heimila og skóla og raunverulegri samvinnu foreldra og starfsfólks skóla um uppeldi og skólastarf.
Hinn 12. júlí 1983 skipaði þáv. menntmrh. Ragnhildur Helgadóttir vinnuhóp til að athuga tengsl fjölskyldu og skóla og gera tillögur um hvernig bæta megi þau tengsl. Hópnum var falið að athuga hvernig samræma mætti betur vinnutíma foreldra og skólabarna og sérstök áhersla var lögð á samfelldan skóladag og skynsamlegt fyrirkomulag nestismála. Þennan vinnuhóp skipuðu auk mín Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntmrn., Bryndís Steinþórsdóttir heimilisfræðakennari, Áslaug Friðriksdóttir skólastjóri, Guðrún Agnarsdóttir alþm. , Helga Hannesdóttir barnageðlæknir, Hrólfur Kjartansson deildarstjóri í menntmrn., Sigrún Magnúsdóttir kaupmaður og Þórunn Gestsdóttir blaðamaður.
Vinnuhópurinn skilaði fyrri áfangaskýrslu í október 1984. Í henni er einkum gerð grein fyrir samfelldum skóladegi og tengslum heimila og skóla í þéttbýli. Í janúar s.l. skilaði vinnuhópurinn síðari áfangaskýrslu og í henni beinist athyglin einkum að dreifbýlinu auk viðbótarupplýsinga um þéttbýlið. En það ber að skoða báðar þessar skýrslur sem eina heild.
Það er rétt að geta þess að þegar núv. menntmrh. Sverrir Hermannsson tók við embætti af Ragnhildi Helgadóttur lýsti hann stuðningi við verkefni vinnuhópsins og óskaði eftir að hann héldi verkefninu áfram og lyki því.
Frv. þetta er flutt í beinu framhaldi af tillögum vinnuhópsins, en þær fylgja þessu frv. sem fskj.
Tillögur vinnuhópsins fela ekki í sér þörf á umtalsverðum breytingum á lögum um grunnskóla heldur er fyrst og fremst um framkvæmdaratriði að ræða með einni undantekningu þó. Það er tillaga í fskj. sem merkt er I á eftir grg. og till. er nr. 2.4 um að auka áhrif foreldra í stjórn skóla.
Vinnuhópurinn mælir eindregið með því að við hvern grunnskóla starfi skólaráð sem sé stjórn skólans til ráðuneytis um innri mál hans. Með því að treysta samband foreldra og starfsfólks skóla og draga þannig úr skörpum skilum milli heimila og skóla má koma í veg fyrir mistök og misskilning vegna skorts á kynnum eða eðlilegum tengslum. Með því að gera foreldra og nemendur samábyrga um daglegan rekstur skólanna er hægt að auka gagnkvæmt traust, tillitssemi og virðingu fyrir sameiginlegum verkefnum heimila og skóla, menntun og uppeldi.
Varðandi einstakar greinar þessa frv. er það að segja að eina breytingin sem frv. þetta felur í sér skv. 1. gr. frv. og varðar 20. gr. gildandi laga er sú að skólastjóri skuli bæði hafa samráð við skólaráð og kennara við stjórn grunnskóla.
Þá eru ákvæði 21. og 22. gr. núgildandi laga um foreldrafélög og nemendaráð hér sameinuð í eina heildargrein. Ekki er gerð önnur efnisleg breyting á þessum lagagreinum en sú að lögð er aukin áhersla á eflingu samstarfs heimila og skóla.
Meginbreytingin kemur svo fram í 3. gr. frv., en hún fjallar um stofnun skólaráða. Þar segir í upphafi 3. gr. sem er um að 22. gr. laganna orðist eins og þar kemur fram:
„Við hvern grunnskóla skal starfa skólaráð sem er stjórn skólans til ráðuneytis um innri mál hans, svo sem kennsluskipan, starfsáætlanir, skólatíma, slysavarnir og félagslíf í skólanum og fleira sem varðar daglega starfsemi skólans.“
Tilgangurinn með stofnun skólaráða er að skapa sameiginlegan vettvang fyrir skólanefnd, foreldrafélag nemendaráð og kennararáð. Mál þau er skólaráð fá til umfjöllunar eru t.d. kennslu- og starfsáætlanir skóla, skólareglur, félagslíf nemenda, ferðalög nemenda, námsefni og fyrirkomulag námsmats, nýting húss og búnaðar, skólalóðin, tilrauna- og rannsóknaverkefni, valgreinar, öryggi á vinnustað, brunavarnir, umferðaröryggi í nágrenni skólans og annað sem lýtur að slysavörnum. Þá er gert ráð fyrir að skólaráð hafi frumkvæði um að vinna að slysavörnum innan skólanna.
Það er orðið mikið áhyggjuefni hve slys á börnum og unglingum eru tíð hér á landi. Slysatíðni barna og unglinga á Íslandi er með þeirri hæstu sem gerist í heiminum. Og þó að mikið sé unnið að slysavörnum er augljóst að ná þarf til stærstu áhættuhópanna með því að virkja þá sjálfa, börnin og unglingana. Það verður best gert með samvinnu foreldra, forráðamanna skóla og nemenda.
Það er ekki talin ástæða til að lögbinda stofnun foreldrafélags og nemendaráðs við hvern grunnskóla ef stofnun skólaráðs er gerð að skyldu. Séu foreldrafélög og nemendaráð starfandi og skóli er af þeirri stærð sem leyfir kennararáð er mikilvægt að auka samvinnu þessara aðila með setu fulltrúa þeirra í skólaráði. Þar sem ein skólanefnd er fyrir marga skóla, eins og t.d. er í Reykjavík, er útilokað að fræðsluráðsmenn sjálfir verði í öllum skólaráðum. Vænlegra er að fræðsluráð tilnefni fólk úr hverfi viðkomandi skóla.
Þá er rétt að benda á ákvæði til bráðabirgða, en það þykir rétt að gefa skólum tveggja ára aðlögunartíma til að koma skólaráðum á og þá er einnig gert ráð fyrir undanþágu fyrir skóla sem telur ekki grundvöll fyrir stofnun skólaráðs, að það sé þá hægt að sækja um undanþágu frá ákvæði 3. gr. til menntmrn., en gildar ástæður þurfa þá að liggja fyrir þeirri undanþágu, t.d. smæð skóla, að hann sé með innan við 50 nemendur, og slíkri umsókn skal þá fylgja rökstudd greinargerð.
Það hefði verið freistandi við þetta tækifæri, herra forseti, að fjalla ítarlegar um þessi mál og þá ekki síst um þá skýrslu sem ég vitnaði hér til. Þetta frv. er ekki stórt í sniðum, en það fer ekki alltaf saman umfang efnis og gæði þess. Hér er á ferðinni þýðingarmikill þáttur í skólastarfi til að efla tengsl og trúnað milli heimila og skóla.
Það er nú orðið stutt til loka þessa þings. Vissulega er æskilegt að koma frv. í gegnum báðar deildir þingsins og ég leyfi mér að vera svo bjartsýn að trúa því að það gæti a.m.k. gerst hvað varðar þessa hv. deild, sérstaklega þegar það er haft í huga að þetta mál hefur fengið talsverða umfjöllun úti í þjóðfélaginu, á meðal skólamanna sérstaklega og forráðamanna barna, foreldranna, á vettvangi foreldrafélaga. Ég veit ekki annað en þessi tillaga vinnuhópsins hafi eins og aðrar fengið jákvæðar undirtektir, þ.e. um stofnun skólaráða. Í skýrslunni kemur fram, að ég held ég muni rétt, að yfir 80% þeirra sem svöruðu þeirri spurningu telja að skólaráð væru til bóta. Ég leyfi mér því að vera bjartsýn um að hv. menntmn., sem væntanlega fær þetta mál til umfjöllunar, treysti sér til að afgreiða þetta mál, en ef ekki verður það að sjálfsögðu endurflutt á næsta þingi.
Að lokinni þessari umræðu, herra forseti, legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.
Umr. frestað.