09.04.1986
Efri deild: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3564 í B-deild Alþingistíðinda. (3235)

409. mál, Iðnlánasjóður

Jón Magnússon:

Virðulegi forseti. Ég vil lýsa ánægju minni með það að þetta frv. skuli nú hafa verið lagt fyrir Alþingi. Eins og fram kemur í grg. og framsöguræðu ráðherra með frv. er það lagt fram vegna þess að líkur benda til að frv. til laga um sjóði atvinnuveganna verði ekki afgreitt á þessu þingi. En það er brýnt að Iðnlánasjóður fái hið fyrsta þær heimildir og geti tekið að sér þá starfsemi sem ákvæði frv. fjalla um.

Í því sambandi vil ég benda sérstaklega á það að þau atriði, sem þetta frv. fjallar um, eru þess eðlis að þau snerta Iðnlánasjóð fyrst og fremst. Aðrir sjóðir, sem sjóðafrv. tekur til, mundu ekki nema að mjög takmörkuðu leyti geta nýtt sér þau atriði sem hér er verið að leggja til að nái fram að ganga fyrir Iðnlánasjóð.

Þá er einnig ljóst að það skiptir verulegu máli, vegna þeirrar starfsemi sem sjóðurinn rekur og þess hvaða aðilum honum er ætlað að þjóna, að hann geti sem allra fyrst markað reglur, ekki síst hvað snertir tryggingadeild útflutningslána.

En svo vikið sé að einstökum atriðum í frv. er í 1. gr. vikið að því að sá rammi, sem heyrir Iðnlánasjóði til, verði víkkaður. Varðandi þetta ákvæði ber að benda á að vegna örra breytinga í atvinnuþróun hafa sprottið upp margar atvinnugreinar sem erfitt er að finna stað í atvinnuvegaflokkum landsins. Vegna ákvæða í lögum Iðnlánasjóðs um forgang þeirra fyrirtækja sem greiða iðnlánasjóðsgjald og samsvarandi ákvæði í lögum um sjóði annarra atvinnuvega eru möguleikar þessara nýju atvinnugreina til útvegunar stofnlána takmarkaðir. Hér má t.d. nefna matvælaiðnað, svo sem úrvinnslu á kjöti og sjávarafurðum, hugbúnaðariðnað og upplýsingaiðnað. Nýjasta dæmið er sérstakar ráðstafanir vegna fiskeldis. Það hlýtur að teljast eðlilegra að arðsemi fjárfestingarinnar ráði í stað úreltrar atvinnuvegaflokkunar þegar metið er hvort eðlilegt skuli að fá lán úr lánasjóði eða ekki.

Þá má einnig nefna að sífellt er algengara að fyrirtæki stundi blandaðan rekstur þar sem hver deild styður aðra og því óeðlilegt að slíta þær í sundur við ákvörðun stofnlána eins og nú er gert. Mun eðlilegra er að líta á starfsemi fyrirtækisins í heild, lánaþörf þess og möguleika til framþróunar. Stofnlánasjóðir gætu þá frekar tekið sameiginlega á einstökum málum, þannig að sjáist fyrir endann á fjármögnun fjárfestinga strax í upphafi.

Ef ég vík að 2. gr. frv. vil ég benda á eftirtalin atriði: Vegna ríkisábyrgðar ætti Iðnlánasjóður að vera talinn jafntraustur lántakandi og aðrir opinberir aðilar. Skoðun Iðnlánsjóðs á erlendum lánamarkaði staðfestir þetta. Eiginfjárstaða sjóðsins er sterk. Eigið fé sjóðsins í árslok 1985 nam um 750 millj. Auk þess að leita sjálfur á erlenda lánamarkaði getur sjóðurinn leitað til annarra aðila en Framkvæmdasjóðs Íslands, sem reynslu hafa í erlendum lántökum.

Nauðsynlegt er að sjóðurinn hafi frjálst val á milli mynta á þeim erlendu lánum sem hann tekur og geti þannig ávallt tekið hagstæðustu lánin á hverjum tíma og samtengt það við útlán sín og á þann hátt minnkað taphættu vegna misgengis á kjörum inn- og útlána. Undanfarin ár hefur Iðnlánasjóður ekki átt kost á þessu og jafnvel orðið að taka lán í erlendri mynt sem voru mjög óhagstæð. Við að taka lán beint á erlendum og innlendum lánamörkuðum fellur niður vaxtamunur milliliða. Einungis vegna þess gæti Iðnlánasjóður lækkað útlánsvexti sína strax um a.m.k. 0,5%. Einungis það atriði skiptir iðnað í landinu mjög miklu máli.

Fullt lántökugjald, 1%, hefur sjóðurinn hingað til greitt vegna lántöku sinnar sem er sama hlutfall og sjóðurinn tekur. Hægt er að lækka það gjald verulega fáist þær heimildir sem 2. gr. þessa frv. gerir ráð fyrir.

Við frjálsa heimild til lántöku opnast möguleikar til stórra lántökusamninga sem sjóðurinn getur dregið á eftir þörfum og valið þá hagstæðustu kjör á hverjum tíma. Þegar jafnmiklar sveiflur í eftirspurn eru eins og raun ber vitni er slíkt fyrirkomulag mjög hagkvæmt.

Sett var sérstök tryggingadeild útflutningslána með lögum nr. 69/1970 og er hún starfrækt við Ríkisábyrgðasjóð. Deild þessi var sett á stofn árið 1970 í sambandi við inngöngu Íslands í EFTA og var henni ásamt Útflutningslánasjóði ætlað það hlutverk fyrst og fremst að vera iðnaðinum til stuðnings í væntanlegum útflutningi og samkeppni við innflutning.

Staðreynd er að tryggingadeild útflutningslána hefur ekki reynst sem skyldi í núverandi mynd. Margar ástæður valda því. Samt sem áður er þörf fyrir útflutningslánatryggingar mjög brýn og mun brýnni nú en fyrir 15 árum. Þörfin er sérstaklega mikilvæg á sviði iðnaðar.

Með hliðsjón af áherslu þeirri, sem lögð er á útflutning iðnaðarvara, er því mikil nauðsyn á því að iðnaðurinn eigi kost á því öryggi sem fylgir því að kröfur á hendur erlendum kaupendum séu tryggðar.

Samtök iðnaðarins í landinu hafa ítrekað bent á þetta og eru því mjög fylgjandi að þetta frv. nái fram að ganga. Þá hefur Útflutningsmiðstöð iðnaðarins lagt áherslu á þetta mál og talið að virkt tryggingakerfi útflutningskrafna og útflutningslána mundi í senn stuðla að útflutningi iðnaðarvara og efla þann útflutning sem fyrir væri.

Árið 1960 voru stofnaðar sérstakar tryggingastofnanir útflutnings í Danmörku og Noregi. Þessar stofnanir hafa um árabil haft samstarf sín á milli ásamt samsvarandi stofnunum í Svíþjóð og Finnlandi. Þar hefur verið skipst á skoðunum og upplýsingum um áhættu eftir löndum og mörkuðum, lögfræðilegum, tryggingafræðilegum málum og stjórnunarlegum. Starfsmenn Iðnlánasjóðs hafa kynnt sér starfsemi stofnananna í Danmörku og Noregi og hafa fengið ýmis gögn sem unnt verður að styðjast við í mótun starfsemi tryggingadeildar útflutningslána. Verður að teljast mjög mikilvægt að komast í samstarf við þessar stofnanir sem búa yfir reynslu og þekkingu og hafa í sínum fórum upplýsingar um markað og starfsaðferðir sem mikinn tíma tekur að afla og hlýtur að vera mjög kostnaðarsamt.

Hlutverk tryggingadeildar útflutningslána er einkum tvíþætt. Annars vegar að ábyrgjast lán er lánastofnanir veita útflytjendum vöru eða þjónustu til fjármögnunar á útflutningslánum sem veitt eru að útveguðum erlendum kaupendum og hins vegar að tryggja kröfu útflytjenda á hendur erlendum kaupendum. Hér er bæði um fjárfestingarvörur að ræða og neysluvörur.

Þá er enn fremur heimild til tryggingar á samkeppnislánum til innlendra aðila er kaupa fjárfestingarvörur, vélar og tæki, sem framleiddar eru innanlands. Enn fremur er veitt heimild til þess að setja ábyrgðartryggingar fyrir þjónustu sem íslenskir aðilar veita erlendis og kemur þar undir m.a. verkefnaútflutningur.

Lögð er áhersla á að deildin verði rekin á viðskiptagrundvelli þar sem kveðið er á um að iðgjöldin skuli standa undir rekstri deildarinnar. Væntanlega yrði í upphafi tekið mið af gjaldskrá annarra Norðurlandaþjóða og enn fremur höfð hliðsjón af viðskiptavenjum með tilliti til vörutegunda, markaða, lánstíma o.s.frv.

Þar sem ríkissjóður ber ábyrgð á skuldbindingum tryggingadeildar útflutningslána er eðlilegt að fjmrh. tilnefni fulltrúa, sem boða skal á stjórnarfundi sem haldnir eru um málefni deildarinnar, með málfrelsi og tillögurétt. Sama gildir að sjálfsögðu um iðnrh. en Iðnlánasjóður heyrir undir það ráðuneyti.

Eins og ég vék að í upphafi skipta þessi ákvæði úr sjóðafrv. í raun Iðnlánasjóð langsamlega mestu máli. Iðnlánasjóður hefur þegar hafist handa um skoðun á starfsemi sem þeirri sem lýst er í frv. og það er ljóst að sjóðurinn getur með mun ódýrari hætti en nú er tekið þau erlendu lán sem honum eru ætluð innan ramma lánsfjárlaga. Eins og ég vék að áðan mundi slíkt þýða að sjóðurinn gæti lækkað útlánsvexti sína, en það skiptir mjög miklu máli.

Fyrir aðra sjóði, sem getið er um í sjóðafrv., eru þau atriði, sem rakin eru t.d. sérstaklega í 2. gr. þessa frv. og að mörgu leyti í 3. gr., þess eðlis að þau skipta þá sjóði hreinlega ekki máli í augnablikinu. Það ber að skoða með tilliti til þess að lögð er áhersla á það og ég vænti þess að Alþingi geti afgreitt þetta frv. á yfirstandandi þingi.

Virðulegi forseti. Ég hef nú rakið þau atriði sem mér finnst skipta mestu varðandi það frv. sem hér um ræðir. Í mörgum efnum stöndum við að baki grannþjóðum okkar hvað varðar skipulag og starfsemi lánasjóða. Þetta frv. er til þess fallið að opna nýja möguleika og gera Iðnlánasjóð í auknum mæli í stakk búinn til að styðja að uppbyggingu íslensks iðnaðar, ekki síst útflutningsiðnaðar.