09.04.1986
Efri deild: 72. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3569 í B-deild Alþingistíðinda. (3247)
348. mál, grunnskóli
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Það má um margt taka undir þau sjónarmið sem að baki þessa frv. búa og geri ég það ásamt hv. 5. landsk. þm. að taka þar undir. Ég þekki mætavel sem skólamaður nauðsyn á góðu samráði og samstarfi bæði við foreldra og nemendur. Hvernig því má koma svo fyrir með sem bestum og virkustum hætti er hins vegar alltaf spurning. Foreldrafélög eru svo sannarlega af hinu góða, þ.e. ef þau eru virk og ef þau skipta sér verulega af málum og eru til aðstoðar í öllu starfi skólans og því vandasama og viðkvæma verkefni sem skólastjóri og kennarar eiga við að glíma hverju sinni.
Ég staldra líkt og hv. 5. landsk. þm. nokkuð við þetta skólaráð sem lögfesta stofnun inni í þessu. Það er nokkuð sem ég vil skoða betur. Það kann vel að vera að með því fáist betra skipulag á þetta og meiri virkni. En ég hef vissar efasemdir um það bara í upphafi.
Annað var það svo í lokin sem ég vildi koma hér að eða kannske spyrja hv. flm. um. Þetta frv. er flutt af hv. þm. í framhaldi af starfi hennar í vinnuhóp sem hún hafði forustu fyrir en var skipaður af þáv. menntmrh. og síðan hefur núv. hæstv. menntmrh. einnig lýst yfir stuðningi við verkefni vinnuhópsins. Það er greinilegt að hv. þm. hefur talið nauðsynlegt að flytja þetta frv. hér inn og er það svo sannarlega þakkarvert. En þá vaknar sú spurning hvort það hafi stafað af því að ekki hafi verið eining um það í ríkisstjórninni að flytja þetta sem stjfrv. hér inn af menntmrh., þannig að það hafi ekki náðst fram sem slíkt eins og venja er til þegar vinnuhópar, skipaðir af ráðuneytum, skila sínu áliti og færa það jafnvel í lagabúning eins og þarna hefur verið gert.
Um þetta vildi ég gjarnan spyrja af því að það er forvitnilegt að vita hvort uppi hafi verið svo mismunandi sjónarmið inni í ríkisstj. að það hafi ekki fengist flutt sem slíkt, heldur hafi hv. þm. orðið að grípa til þessa ráðs til að koma sjónarmiðum vinnuhópsins og sínum um leið á framfæri.