09.04.1986
Neðri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3571 í B-deild Alþingistíðinda. (3252)

336. mál, búnaðarmálasjóður

Frsm. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Meiri hl. landbn. hefur hér lagt fram frv. til l. um breytingu á lögum um Búnaðarmálasjóð. Ég er andvígur þeirri breytingu sem hér er gert ráð fyrir og hef birt um þetta nál. á þskj. 671.

Skv. gildandi lögum um Búnaðarmálasjóð eru bændur skattlagðir með gjaldtöku á afurðir sínar, gjaldtöku í Búnaðarmálasjóð, en hann er notaður til framlags til búnaðarsambanda og til Stéttarsambands bænda og á að skiptast til helminga að því er þetta tvennt varðar.

Þess skal getið að heildartekjur Búnaðarmálasjóðs á árinu 1985 voru ekkert smáræði, 70,6 millj. kr. Þar af fékk Stéttarsambandið 15,4 millj. og búnaðarsamböndin 15,4 en Bjargráðasjóður 38,4 og Framleiðsluráð landbúnaðarins 1,4 millj. kr. Nú þegar er því um mjög miklar tekjur og jafnframt um verulega skattlagningu á bændur að ræða til að standa straum af félagslegum og stjórnunarlegum verkefnum. Í heild nema þær tölur, sem ég hef hér nefnt um heildartekjur Búnaðarmálasjóðs, u.þ.b. 1% af heildarafurðaverðinu til bænda.

Skv. því frv. til l., sem meiri hl. landbn. leggur hér til að samþykkt verði og flytur reyndar, er ætlunin að hækka þetta allverulega. Tilefnið er að upp hafa komið svokölluð sérsambönd, sérsambönd sauðfjárbænda og kúabænda, landssambönd þeirra. Þessi sérsambönd hafa nýlega risið upp og telja sig hafa og hafa sjálfsagt hlutverki að gegna. En að mínum dómi eru þau að ganga inn í hlutverk sem Stéttarsamband bænda hefur áður gegnt. Þess vegna væri langeðlilegast að í þeim mæli sem verkefni flytjast til sérsambandanna, þá flytjist líka tekjur til þeirra frá Stéttarsambandi bænda.

En það er ekki einungis að hugmyndin sé að koma til móts við, ef menn vilja orða það svo, samtök sauðfjárbænda og samtök kúabænda með þeim hætti að hækka þennan veltuskatt á bændur um 40% að því er varðar landbúnaðarafurðir sem heyra til sauðfjárbúskapar eða kúabúskapar. Það á að hækka hann úr 0,5 upp í 0,7% og vel að merkja, þetta er veltuskattur af heildarafurðaverðinu til bænda. En ofan á það er bætt í þessu frv. til l. heimildum til landbrh. til að skattleggja allar aðrar greinar í þjóðfélaginu sem ekkert hefur komið fram um að séu að biðja um það. Það á við varðandi garðyrkju t.d. Þar á að vera heimild til að hækka skattlagninguna vegna þarfa einhvers sérsambands, sem þar yrði til eða væri til, úr 0,5% af veltu í 1,5%. Það á að heimila að þrefalda gjaldtökuna vegna garðyrkjubúskapar, hækka veltuskatt á garðyrkju eða ylrækt sem þessu nemur. Það sama á að gilda varðandi loðdýrarækt. Skv. þessu frv. á að heimila að gjaldtakan fari úr 0,5 upp í 1,5%, veltuskattur á loðdýrarækt í landinu þrefaldist. Enn er heimild til þess skv. þessu frv. til l., sem meiri hl. landbn. mælir með, að hækka veltuskattinn á hrossabúskap um 200%, úr 0,5% upp í 1,5%. Þær heimildir, sem hér er verið að veita landbrh., eru því orðnar langt umfram þær óskir sem fram hafa komið frá þessum sérstöku samböndum sauðfjárbænda annars vegar og kúabænda hins vegar. Það er engin smáræðis hækkun á þessum veltuskatti og vel að merkja, hlutfall af veltu gefur umtalsverðar fjárhæðir eins og hér var gefið til kynna áðan varðandi þær tekjur sem þegar renna til Búnaðarmálasjóðs.

En þar með er ekki allt upp talið því að allar búgreinar skulu hér við það búa skv. þessu frv. til l. að heimildir til skattlagningar á þær vegna hugsanlegra sérsambanda verði hækkaðar. Það á að gilda um alifuglarækt. En þar á ekki að þrefalda skattlagninguna skv. heimild í núgildandi lögum, þar á að fimmfalda hana. Það á að hækka skattlagninguna um 400% á alifuglarækt eða þennan veltuskatt úr 0,25% upp í 1,25% af veltu. Það sama á að gilda um svínarækt. Þar á líka skv. þessu að vera heimild til fimmföldunar á veltuskatti til þess að láta renna til sérsambands sem til væri eða upp kynni að koma í þessari grein og landbrh. og sérsambandið hefðu áhuga á að fengju þennan veltuskatt.

Enn skal upp talið að það sama á að gilda í fiskeldi og varðandi fiskirækt sem er vaxandi grein og ýmsir tala um að muni velta hundruðum, jafnvel þúsundum milljóna áður en langt um líður. Þar á líka að hækka heimild til skattlagningar úr 0,25% í 1,25% af veltu eða fimmfalda hana, hækka hana um 400%.

Ég tel að það sé alveg fráleitt og engin ástæða til þess að hefja þá skattlagningu sem hér er gert ráð fyrir. Í fyrsta lagi liggur ekkert fyrir þinginu um óskir annarra aðila en sauðfjárbænda og kúabænda um það að fá til sín sérstakan tekjustofn.

Í annan stað vitum við að t.d. í greinum eins og alifuglarækt og svínarækt hafa menn lagt á það áherslu að vera ekki nauðgað inn í það kerfi sem í gildi er í hinum hefðbundnu landbúnaðargreinum og hafa veríð stoltir af. Ef samtök er fyrir hendi í þessum greinum geta menn vitaskuld greitt til þeirra iðgjöld, en hér er beinlínis verið að heimila gjaldtöku af öllum, hvort heldur þeir vilja eða ekki, svo framarlega sem landbrh. eða viðkomandi samtök koma sér saman um það. Og þetta eru engar smáfjárhæðir.

Jafnframt veit ég að það ríkir uggur hjá ýmsum þeim sem í fiskeldi eru yfir því að hafa frétt af því að auka eigi heimildir til gjaldtöku með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir.

Mín skoðun er sem sagt sú að í fyrsta lagi sé engin ástæða til að vera með sérstaka gjaldtöku af þessu tilefni. Í annan stað sé stórvarasamt að fara að teygja sig með þreföldun eða fimmföldun heimildar til gjaldtöku út yfir allar mögulegar og ómögulegar búgreinar hvort sem þær óska eftir því eða ekki. Í þriðja lagi tel ég að þegar sérstök sérgreinasambönd, eins og kúabændasamtök eða sauðfjárbændasamtök, eru sett á stofn og taka að sér gæslu hagsmuna innan greinarinnar í stað þeirrar gæslu sem Stéttarsamband bænda hefur séð um og verið nokkuð vel haldið peningalega séð til að annast, þá eigi Stéttarsambandið að sjá af hluta af tekjum sínum til þessara sérsambanda til þess að þau geti haldið uppi þeirri starfsemi sem bændur telja eðlilega og rétta og óska sérstaklega eftir.

Með tilvísan til þessa, herra forseti, legg ég mikla áherslu á það að það frv. til l. um breytingu á lögum um Búnaðarmálasjóð, sem hér hefur verið lagt fram, verði fellt.